Fegurð

24 Aug, 2009

Haust- og vetrartrendin í förðun

fegurdtrend.PNG

MAC hafa sett saman vídeó sem sýnir stefnur í förðun fyrir veturinn. Tískuheimur mun fjalla um öll helstu förðunartrendin þegar líða fer á haustið, en hér gefst ykkur tækifæri á að sjá brot af því sem koma skal. Í myndbandinu lýsa förðunarmeistarar MAC hvað verður vinsælt í förðun á augum, vörum og húð. Förðunarmeistarar á vegum MAC eru eftirsóttir á tískusýningarnar og vita því eitt og annað þegar kemur að því nýjasta og flottasta.

Í vetur verður ‚highlighting‘ mikilvægt en þannig er hægt að ýkja andlitslagið. Þar sem níundi áratugurinn er fyrirferðamikill í tískunni um þessar mundir eru þau áhrif áberandi í förðun. Þetta birtist í valdaútliti andlitisins með fyrrnefndu highlighti, dökkum og framtíðarlegum augum, ásamt sterkum litum á vörum. Í myndbandinu er hægt að líta á svipmyndir frá förðun fyrir tískusýningar haustsins en dyggir MAC aðdáendur ættu að bíða spenntir eftir áhugaverðum línum sem væntanlegar eru til landsins í september.






18 Aug, 2009

Old Hollywood glamúr Dolce & Gabbana

fegurddogg.PNG

Nýja förðunarlínan frá Dolce & Gabbana hefur litið dagsins ljós. Eins og Tískuheimur.is greindi frá fyrr á árinu hugðu þeir Domenico Dolce og Stefano Gabbana á að brjóta sér leið inn í snyrtivörubransann í fyrsta sinn, og það nú í kreppunni. Hönnunarteymið völdu leikkonuna Scarlett Johansson sem andlit línunnar og hefur hún verið að kynna hana undanfarið. Scarlett kom við í Selfridges í London þar sem línan var afhjúpuð fyrir Bretana. Hún var klædd í fatnað innblásin frá fimmta áratugnum, með Veronica Lake liði í hárinu og förðuð með nýju Dolce & Gabbana vörunum.

Eins og við var að búast er förðunarlínan í anda gullaldar Hollywood þegar glamúrinn var ósvikinn og fólst í kvenlegri förðun. Scarlett er því hið fullkomna andlit línunnar en það sem henni líkar best við hana er hversu klassísk hún er en þó með nútímalegu yfirbragði. Á viðburðinum í Selfridges ákvað Scarlett að leggja áherslu á varirnar, en það var gert með því að nota Dolce & Gabbana Classic Cream Lipstick í litnum ‘Iconic‘. Ekki er víst að Íslendingar fái að kynnast vörunum í  bráð en það er þó aldrei að vita; maður hefði allavega ekkert á móti því að komast yfir glamúr snyrtivörur í Scarlett Johansson stíl.






18 Aug, 2009

Hálfrökuð höfuð

fegurdrakad.PNG

Rihanna; Kate Lanphear; Cassie; Carmen Electra.

Rihanna vakti athygli þegar hún birtist með hálfrakað höfuðið um miðjan júlímánuð. Rihanna, sem er ekki þekkt fyrir að fara hógværar leiðir í fatavali, hefur greinilega langað í djarfari hárgreiðslu. Það sem færri vita þó er að stílistastjóri Elle tímaritsins var búin að sporta svipuðu lúkki í þónokkurn tíma áður en Rihanna lét til skarar skríða. Tískudama þessi kallast Kate Lanphear og er mikils metin innan tískuheimsins fyrir rokkaðan stíl sinn. Stuttir, ljósir lokkarnir við rakað höfuðið fullkomna algjörlega útlit hennar.

Hálfrökuð höfuð eru ekkert nýtt af nálinni, brasilíska fyrirsætan Alice Dellal var ein af þeim fyrstu sem sýndu greiðsluna, en í aðeins kvenlegri mynd þar sem hún hélt síðu hárinu öðru megin. Söngkonan Cassie fetaði í sömu spor og Dellal í apríl og Carmen Electra einnig í júlí. Á sýningarpöllum fyrir haustlínurnar var nokkuð um hárgreiðslur af þessu tagi, meðal annars hjá Alessandro Dell‘Acqua og Issa. Spurningin er því hvort þetta sé nýja tískugreiðslan?






09 Aug, 2009

Listin að nota liti

fegurdcolourcraft.PNG

Litagleðin er allsráðandi í nýrri förðunarlínu frá MAC sem kom til landsins ekki alls fyrir löngu. Línan kallast Colour Craft og inniheldur litskrúðuga varaliti og glossa, ásamt augnskuggum, kinnalitum og púðrum sem byggjast upp á steinefnum. Förðunarmeistarar þurfa að vera djarfir þegar kemur að því að nota liti, en það er akkúrat hugsunin á bak við Colour Craft línuna. Henni er ætlað að gefa konum tækifæri á að nota skæra liti á skemmtilegan og klæðilegan hátt.

Varaglossin koma í sex litum en hver og einn litur er blanda af þremur tónum sem blandast saman við ásetningu svo liturinn gefur flotta áferð með góðum gljáa. Það sem er hvað áhugaverðast við línuna eru án efa steinefnapúðrin sem koma einnig í sex litum. Steinefnin veita húðinni náttúrulegan ljóma ásamt því að gefa henni smá lit, en púðrin henta vel til að ‚highlita‘ andlitið. Augnskuggarnir eru einnig úr steinefnum en hver skuggi samanstendur af fjórum litum sem vel er hægt að nota alla saman til að mynda skemmtilega litablöndun. Gott ráð er að bleyta örlítið í skuggunum við ásetningu til að fá skarpari lit.






Skoða allar greinar í Fegurð