80's stemning hjá Marc Jacobs

36681239646628fegurdmarcjacobs.PNG

Það má með sanni segja að Marc Jacobs hafi lagt mikið upp úr förðun og hári þegar hann sýndi haust- og vetrarlínu sína í New York, en bæði förðunin og hárið var í takt við eitís áhrifin í hönnuninni. Til að kalla fram ekta eitís stemningu fékk Jacobs til liðs við sig þá Francois Nars og Guido Palau sem í sameiningu þróuðu 60 einstök útlit fyrir sýninguna, þannig að engar fyrirsætur voru með eins förðun og hárgreiðslur.

Förðun
Förðunin minnti á það sem var í gangi í næturklúbbamenningu New York borgar á níunda áratgunum og má segja að hún hafi borið yfir sér mikla fortíðarþrá, en þó í flottum búningi. Húðin var með postulínsáferð þar sem Francois notaði léttan fljótandi farða og laust púður yfir í ljósum lit. Kinnbeinin voru svo máluð með bleikum kinnalit.

Mikið var af skærum litum og ýktri förðun í kringum augun. Augun voru römmuð inn með svörtum augnblýanti og kolsvörtum augnskugga sem náðu út að enda augabrúnanna. Það var þó misjafnt hvernig skæru litirnir voru notaðir en oft fóru þeir langt út fyrir augnsvæðið, annað hvort upp fyrir augabrýrnar eða út til hliðar frá augunum. „Þú vilt leika þér með förðun. Förðun er frábær fylgihlutur, það eru skilaboðin," sagði Francois um gamansömu förðunarstefnuna hjá Jacobs.

Litirnir sem Francois notaði af augnskuggum voru skrautlegir en meðal þeirra voru kóbaltblár, smaragðsgrænn, skærfjólublár, rauður og fúksíubleikur. „Það er breiður fjölbreytileiki af litum," sagði förðunarfræðingurinn og sagðist velja litina fyrir hverja fyrirsætu eftir því hvað færi hverri stelpu fyrir sig." Varirnar komu í tvenns konar litum, skærrauðu og silfurmetal, en flestar fyrirsæturnar báru hins vegar hlutlausan húðlitaðan á vörunum.

Hár
Hárgreiðslurnar hjá Jacobs voru hver annar ólíkari en þó allar mjög stórar og fyrirferðamiklar og kæmi ekki á óvart ef nokkrar dollur af hárspreyi hefði verið notað til að festa herlegheitin. Palau, sem sá um hár fyrirsætanna, vann helminginn af hárgreiðslunum fyrirfram enda skiljanlegt þar sem margar þeirra voru nokkuð flóknar. „Meirihlutinn af greiðslunum gerðust ósjálfrátt, sem eftir á að hyggja, var það fallega við það," sagði Palau.

Grunnurinn af öllum greiðslunum lá í „óhreinni áferð" eins og Palau sagði sjálfur, en hárið var með frekar möttu yfirborði. Hárteymið blandaði saman hármótunarvörum til að auðvelda sér vinnuna við að skúlptúra hárið en þau notuðu ýmist vöfflujárn, sléttujárn, krullujárn eða hárþurrku til að fá sem fjölbreyttasta útlitið. „Aðalatriðið er að hafa þetta skemmtilegt. Og á þessum tímum, þegar það eru svo mörg dapurleg skilaboð alls staðar, verðum við að segja á einhverjum tímapunkti, „Af hverju ekki?""