Baráttan gegn appelsínuhúðinni
Snyrtivörufyrirtækin hafa verið dugleg að koma með ný krem nú fyrir sumartíðina sem eiga að berjast gegn appelsínuhúð. Öll eiga þau að gera húðina stinnari og þéttari og sjá til þess að appelsínuhúðin verði minna sýnilegri. Kremin innihalda ýmis háþróuð efni og því er mikilvægt að nota vöruna rétt til að ná sem bestum árangri. Því er best að lesa vel hvernig á bera kremið á og hversu oft. En eftir reglulega notkun á kremunum ættu flestar að vera tilbúnar til að mæta á bikiníinu niðrí Nauthólsvík sælar og glaðar.
1. Body Excellence Slim er grenningarvaran sem Chanel bíður upp á. Gelið grennir með því að vinna á aðalorsökum appelsínuhúðar. Fituminnkandi efni vinna að því að örva húðina þannig að losun eigi sér stað djúpt inni í húðinni.
2. High Definition Body Lift frá Clarins vinnur bæði á appelsínuhúðinni sem fyrir er, ásamt því að varna því að hún birtist aftur og hefur því fyrirbyggjandi áhrif.
3. Dior Svelte Reversal byggir á því að snúa við þróun fituvefjarins. Þökk sé náttúrulegum efnum sem örva endurnýjun húðarinnar verður hún stinnari.
4. Body Refiner frá La Mer er rándýrt skrúbbkrem sem inniheldur alvöru demanta, en þeir eru harðasta frumefni jarðar. Í kreminu blandast 1.75 karat demantaduft við frægu La Mer blönduna. Þó að kremið eigi ekki beint að leysa appelsínuhúðavandamálið þá hjálpa demantarnir til við að skrúbba burt dauðar húðfrumur og örva blóðrásina.
5. Body Creator línan frá Shiseido inniheldur ýmis krem og gel sem öll hjálpa til við að bola appelsínuhúðinni burt. Auromatic Sculpting Concentrate er krem með efnum sem örva kollagen myndun húðarinnar. Gelið stingur svolítið á meðan það er að fara inn í húðina en húðin virðist stinnari eftir á. Í línunni er einnig að finna sprey og skrúbb fyrir þær sem kjósa heldur þær vörur.
6. Good-bye Cellulite gelkremið frá Nivea er reyndar ekki það nýjasta í hópnum en það er allavega það ódýrasta. Þrátt fyrir að vera svolítið klístrað við ásetningu strekkist húðin svo um munar og fyrir minni pening.
