Bestu snyrtivörurnar
Estée Lauder TurboLash; Clarins Delicious Self Tanning Cream; Estée Lauder Time Zone; YSL Rouge Volupte; Lancome Oscillation; L'Oreal Double Extend; Estée Lauder Perfectionist CP+; Clinique Airbrush Concealer; Elizabeth Arden Eight Hour Cream; Clinique Even Better Skin Tone Corrector.
CEW eða Cosmetic Executive Women eru samtök sem sameinar fólk í stjórnunarstöðum innan fegurðarbransans. Samtökin eru með aðsetur í New York en eru tengd samnefndum samtökum í Bretlandi og Frakklandi. Eitt hlutverka samtakanna er að velja bestu förðunar- og snyrtivörurnar fyrir CEW verðlaunin. Nýlega voru verðlaunavörur ársins tilkynntar bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum, en markmið samtakanna er að auðvelda neytendum að velja bestu vörurnar frá þeim verri.
Í Bandaríkjunum fékk Even Better Skin Tone Corrector frá Clinique verðlaun fyrir bestu vöruna gegn öldrun húðarinnar. Kremið jafnar húðlitinn eftir dökka bletti, öldrunarummerki og skaða vegna sólar. Time Zone Line and Wrinkle Reducing Moisturizer frá Estée Lauder var svo valið besta rakakremið, en það örvar prótín húðarinnar og heldur raka hennar til að fá fram eins ferskt og unglegt yfirbragð og hægt er. Besta varan í flokki sólarvara var Delicious Self Tanning Cream frá Clarins, eitthvað sem vert er að kíkja á fyrir sumarið.
Hvað förðunarvörur varðar voru tveir maskarar sem stóðu upp úr, Double Extend Beauty Tubes maskarinn frá L‘Oréal í ódýrari flokknum og Oscillation frá Lancome úr þeim dýrari. Double Extend maskarinn inniheldur tvö skref til að ná fram sem lengstum augnhárum. Lancome Oscillation er aftur á móti titrandi maskari en þeir eru að verða sívinsælli. Rouge Volupte Silky Sensual Radiant frá YSL varð svo fyrir valinu í flokknum Besti varaliturinn.
Úrslit CEW verðlaunanna í Bretlandi innihéldu aðrar vörur auk þess sem flokkarnir voru ekki allir þeir sömu. Þar var Nivea Sun DNAge Cell Protection Anti-Aging Face Sun Cream valið besta varan í sól, en kremið er með SPF stuðul 30. Meðal annarra húðvara fengu Superdefence Age Defense rakakremið frá Clinique og Perfectionist CP+ Wrinkle Lifting Serum frá Estée Lauder verðlaun. Það síðarnefnda er gríðarlega vinsælt enda með silkiáferð og hefur sannað sig í baráttunni gegn öldrun húðarinnar.
Besti maskari álitsgjafa Bretlands er TurboLash frá Estée Lauder en það er titrandi maskari svipaður og Oscillation frá Lancome. Airbrush Concealer frá Clinique var valinn besti hyljarinn en hann er töfralausn við baugum. Hann er ekki of þykkur en þekur samt vel. Það voru svo Velvet Hour frá Kate Moss og Chloé Eau de Parfum sem hrepptu hnossið fyrir bestu ilmina. Titilinn Goðsagnakennda fegurðarvaran hlaut Eight Hour kremið frá Elizabeth Arden, sem var upprunalega framleitt á fjórða áratugnum.
