Blómailmur frá Gucci

23051240934353fegurdflora.PNG

Gucci koma með nýjan og ferskan ilm fyrir sumarið sem kallast Flora. Ilmurinn er kvenlegur blómailmur innblásin af hinu þekkta Flora munstri tískuhússins. Flora er annar ilmurinn sem yfirhönnuður Gucci, Frida Giannini, kemur með á markaðinn undir stjórn tískuhússins og bindur hún miklar vonir við hann.

Grunntónn Flora ilmsins er sandelviður blandaður saman við hjartatóna rósa og Osmanthus blóma en topptónar sameina sítrus og bóndarós. Giannini segist hafa verið hugfangin af hugmyndinni um blómailm og ákvað því að tengja ilminn munstrinu Flora. Hún vildi fyrst og fremst hafa ilminn ferskan og er hann því mjög sumarlegur og ber yfir sér unglegan anda.

Ilmurinn er miðaður á yngri markhóp en Giannini segir Gucci by Gucci ilminn vera hugsaður fyrir valdamiklu Gucci konuna, á meðan Flora er beint til nautnafullu ungu konunnar. „Flora er léttara, blómailmurinn kallar fram yngri neytanda sem hefur djarfa nautnahlið. Ég vil ekki segja að Flora sé dóttir Gucci by Gucci en hún gæti verið yngri systir," kynnti Giannini fyrir stuttu.

Að því sögðu þýðir ekki að Flora sé bannaður eldri konum og segist Gianni sjálf nota bæði ilmvötnin, Flora á morgnana og Gucci by Gucci á kvöldin. Tilvalið er að velja ferskari og léttari ilm á sumrin, og skipta þyngri lykt fyrir blómailm eins og Flora. Meðfram ilminum koma einnig svitalyktareyðir, líkamskrem og sturtugel.