Brot af því besta í hátískufegurð

fegurdhatiska.PNG

Efri röð: Christian Dior, Jean Paul Gaultier, Chanel. Miðröð: Jean Paul Gaultier, Chanel. Neðri röð: Valentino, Jean Paul Gaultier, Givenchy.

Í hátískusýningum eru förðun og hár jafnan svipað draumkennt og fatnaðurinn sjálfur. Því er oft ekki miklar hugmyndir að fá, en hátískuförðunin gefur þó tóninn fyrir fínni förðun og hárgreiðslur vetrarins. Hjá Dior var jafn mikið um liti á andlitum fyrirsætanna og í fatnaði þeirra. Augun voru förðuð í cat eye stíl með blautum eye liner, og bæði varir og augnlok voru lituð með björtum litum. Chanel einbeittu sér að augunum, mikilli og þykkri svartri línu sem náði yfir hálft augnlokið og út í cat eye stíl. Húðin var náttúruleg og varnirnar hlutlausar.

Hvað hárið var þá höfðu hárgreiðslumeistarnir greinilega fengið lausan tauminn. Vöfflujárnið fékk uppreisn æru hjá Dior og hár allra fyrirsætanna í Givenchy sýningunni var litað kolsvart. Chanel sýndu nokkuð klæðilegar greiðslur, en það var sítt tagl með örlitlum lið í endann og miklum ‘volume‘ á ofanverðu höfðinu. Christian Lacroix einbeitti sér alfarið að förðunni þar sem hárið var vafið inn í klút. Bæði Lacroix og Valentino sýndu rómantíska förðun með rósóttum kinnum og metal augnskuggum. Valentino toppaði svo lúkkið með dularfullum og seiðandi blúndugrímum.

Jean Paul Gaultier var með mjög fjölbreytt förðunar- og hárútlit. Aðalinnblásturinn var gamaldags Hollywood stíll en einnig var vikið frá því í algjörra andstæðu. Sumar fyrirsætur báru því ekta glamúr förðun; afmarkaðar augabrúnir, fullkomin smokey augnförðun og vandlega litaðar varir. Á meðan búið var að mála svarta grímu yfir augnsvæði annarra. Elie Saab var einnig með svipað grímuútlit yfir augun, en í skjannahvítu. Það var því svolítið ofurhetjuþema í gangi en yfir höfuð gekk fegurðin á hátískusýningum út á kvenlegheit og glamúr í bland við smá töffleika.