Fagmannleg hárumhirða í boði Gosh
Damage Control sjampó; Colour Rescue sjampó; Pump up the Volume sjampó; Salt of Mine Wet'n Dry saltvatn; Rescue Me! Repair'n Shine Serum.
Danska snyrtivörufyrirtækið Gosh kom með hárvörulínu á markaðinn fyrir ekki svo löngu síðan. Þar með leituðu þeir á ný mið enda hafa förðunar- og snyrtivörur fyrir andlit og líkama verið aðalsmerki fyrirtækisins hingað til. Hárlínan er því liðurinn í því að gera Gosh að alhliða fegurðarfyrirtæki. Það er greinilegt að innleiðing hárvaranna hefur verið úthugsuð og þarfir viðskiptavinanna skoðaðar. Allt er mjög fagmannlega gert, frá pakkningum til formúla hárvaranna.
Það var Jes Rasmussen sem sá um að þróa vörurnar en hann er danskur hárgreiðslumaður með yfir 43 ára reynslu í farteskinu. Jes hefur unnið í sinni grein um allan heim og spilað stórt hlutverk í velgengni stórra hárvöruframleiðanda. „Á ferli mínum hef ég rekist á margar hárumhirðu- og hármótunarvörur og er það mín sérfræðileg skoðun að Gosh Professional Hair Care stendur fyrir það besta af því besta," segir Jes.
Hárlínan inniheldur þrjár tegundir af sjampói og næringum með þremur mismunandi áherslum og hefur hver áhersla sinn lit. Gulgrænn er fyrir skemmt hár, bleikt er fyrir litað hár og blátt veitir hárinu aukna lyftingu og því fyrir flatt og líflaust hár. Hvað hármótunarvörurnar varðar þá eru þær níu talsins. Þar er meðal annars að finna hársprey, hitavörnunargel og vax. Áhugaverð vara er Salt of Mine Wet‘n Dry Saltwater sem gerir hárið fallega liðað, eins og maður hafi verið á ströndinni. Línan í heild er vegleg og býr yfir miklu úrvali.
Aðspurður um heim hárvara í dag segir Jes mikið á boðstoðlinum. „Hinn spennandi heimur hárs hreyfist á þeim hraða að jafnvel reynslumiklir frumkvöðlar í hárgeiranum, eins og ég, geta lent í flæktum vef þessa hraða umhverfis sem er hárstílisering og hárvörur." En hvert ætli sé hans mottó þegar kemur að hárumhirðu: „Hárið á þér ætti að vera varðveitt og verndað þannig að þér líði heilbreigð og falleg." Og þetta segir Jes að megi ná fram með hárvörunum frá Gosh, algjörlega þess virði að prófa.
