Förðunarlína frá Dolce & Gabbana
Frá vinstri: Pat McGrath farðar fyrirsætuna Lily Donaldson baksviðs hjá Dolce & Gabbana, fyrirsætur baksviðs.
Fyrirsæturnar sem sýndu haustlínu Dolce & Gabbana fyrir næsta haust, klæddust fatnaði, skóm og aukahlutum frá merkinu en einnig, í fyrsta skipti, förðunarvörum frá ítölsku hönnuðunum. Dolce & Gabbana hafa ráðist í framleiðslu á förðunarvörum. Þetta er eflaust ekki hentugasti tíminn til að hleypa af stokkunum lúxusförðunarlínu, en Domenico og Stefano hafa greinilega séð blómstrandi tækifæri.
Eins og við var að búast voru margir spenntir að sjá fyrirsæturnar farðaðar með nýju línunni á sýningunni sem átti sér stað í Mílanó í byrjun mánaðarins. Það var því talsvert meiri athygli á andlit fyrirsætanna en áður hefur verið á sýningum merkisins. Í förðuninni var mikil áhersla á varirnar, sem voru málaðar í fallegum djúprauðum lit sem kallast ‘Dahlia‘. Einnig voru augun undirstrikuð með blautum augnblýanti í ‘cat eye‘ stíl.
Förðunin var dálítið gamaldags í anda fjórða og fimmta áratugarins, en andlit línunnar er einmitt Scarlett Johansson sem er þekkt fyrir fegurð í anda íkona fyrri áratuga. Sú sem á heiðurinn á förðuninni fyrir sýninguna er hin hæfileikaríka Pat McGrath. Hún gerði húðina matta og notaði örlítið af kinnalit til að fá fram ferskleika.
Hún ljóstraði einnig upp tækninni á augnförðuninni en hún byrjaði á því að setja hvítan blýant á innri barm augnanna þannig að þau virðist stærri. Augnhárin eru krulluð áður en maskari er borinn á til að stækka umfang þeirra. Best er að nota maskara sem lengir og aðskilur augnhárin vel frekar en að þykkja þau. Hvað blauta eyelinerinn varðar, þá er hann borinn við efri augnhárin í nokkuð breiðri línu og línan svo látin enda í léttum sveig.
Förðunin er virkilega kvenleg og seiðandi og ber yfir sér svolítið franskt ívaf. Þótt hún hafi verið einkar fáguð var valið á hárskrauti frekar spes en leðurhanskar prýddu höfuð sumra fyrirsætanna. Hártauið hefði getað komið hræðilega illa út og þótt það hafi verið undarlegt virkaði það nokkuð vel. Annað hárprýði voru skreyttar satínspangir sem voru öllu hefðbundnari. Það var þó gaman að sjá smá tilraun í hárskrauti og spurning hvort hanskar á höfðinu verði trend næsta haust?
