Förðunarstríðsmenn í sumarlínu MAC

99321246589431fegurdstylewarrior.PNG

Hásumarslínan frá MAC er undir afrískum áhrifum. Línan kallast Style Warrior og er fyrir sterkar og djarfar konur sem þora að prófa sig áfram í förðun. MAC eru algjörlega með puttann á púlsinum hvað tískuna varðar því afrísk áhrif voru yfir höfuð mjög vinsæl í fatnaði og aukahlutum fyrir sumarið. Í Style Warrior er að finna skæra liti á móti brúnum tónum. Varaglossin koma í fjólubláu, gulu, brúnu og appelsínugulu og varalitirnir í fjólubráum og brúnum. Augun eru einnig í fyrrnefndum litum, en í línunni er að finna fimm augnskugga.

Meðfram förðunarvörum Style Warrior línunni koma MAC einnig með ýmsar bronsvörur. Þar er að finna sólarpúður og laust púður ásamt ljómadropum og húðgljáa. Tvær síðarnefndu vörurnar eru mjög áhugaverðar nýjungar. Lustre Drops eru bronsdropar sem ljóma upp andlitið eins og sólin í vökvaformi. Skinsheen er gelkennt sprey sem veitir húðinni gljáa en það er fyrst og fremst ætlað leggjunum. Style Warrior er kærkomin förðunarlína fyrir þær sem þora, en ekki skemmir fyrir að pakkningarnar eru með tribal, zebra og blettatígra munstri sem lífgar upp á snyrtibudduna.