Franska rivíeran innblástur sumarlínu Chanel

60471244035228fegurdchanel.PNG

Í síðustu viku kom sumarlínan frá Chanel í verslanir hérlendis. Línan kemur í tæka tíð fyrir sumartíðina og leysir af vorlínuna sem kallaðist bóhemfantasía. Sú var nokkuð dekkri og því fínt millistig milli veturs og sumars. Nú er hins vegar kominn júní og því fylgja brúnir og bjartir tónar í förðun. Sumarlínan kallast Cote d‘Azur eða franska rivíeran og er innblásin af ferðalögum Coco Chanel á sólríka sumarleyfisstaði Miðjarðarhafsins. Listrænn stjórnandi Chanel, Peter Philips, ákvað að færa þessa sólartilfinningu inn í sumarlínuna og tókst honum það prýðilega enda undirstrika vörurnar fullkomlega sólbrúnt andlit.

Til að ná fram sólkisstu andliti eru að finna léttar sólarvörur í línunni, Soleil Tan de Chanel. Húðin er fyrst undirbúin með bronsgrunninum Bronze Universel Bronzing Makeup Base sem er flaulsmjúkt kremgel og er hægt að nota eitt og sér til að ná fram heilbrigðu útiteknu útliti, eða undir hefðbundinn farða. Púðrin eru tvenns konar. Annað er 4 Lights Bronzing Powder, fjögurra lita púður með misdökkum litum, frá ljósbrúnu í dökkbrúnt. Hægt er að nota dökku litina til að ná fram brúnku í andlitið en þá ljósu til að leggja áherslu á lögun þess. Precious Bronzing Loose Powder er laust púður sem má nota á andlit og niður á axlir en það veitir sólbrúnkunni aukinn gljáa.

Samkvæmt Chanel eiga augun að vera gyllt í sumar en varir og neglur í ferskum kórallit. Augnskuggapallettan er kvartett af brúnum litum með örlitlum kóraltónum og er virkilega flott að nota þá saman og mynda skyggingu af brúnum tónum á augnlokið. Einnig kom nýji liturinn Seashore af Ombre d‘Eau Bi-Phase augnskugga en það er líkt og gloss og gerir augnlokin þar af leiðandi fersk. Það er gott úrval af varalitum og varaglossum í Cote d‘Azur línunni. Varaliturinn Aqualumiére er gegnsær og með sólarvörn, sem sagt fullkomlega léttur fyrir sumartímann. Monte Carlo er fallegur kórallitur og fer einstaklega vel við naglalakkið Orange Fizz.