Glansandi kinnbein

53831240238153fegurdglanshud.PNG
Stella McCartney; Emporio Armani, Eley Kishimoto; MAC Clear Gloss; Akris.

Húðin er alltaf í meiri forgrunni á sumrin en veturna. Heilbrigð og frískleg húð á miklu betur við yfir sumartímann heldur en þykkt meiklag. Til að gera húðina sérlega frísklega tóku förðunarfræðingar á sumarsýningum hönnuða upp á því að undirstrika kinnbeinin með því að setja sanseraðan highlight skugga á þau upp að augabrúnum. Hjá Stella McCartney sást þessi förðun best, en þar voru kinnar fyrirsætanna bleikar og silfurgljái settur efst á kinnbeininn. Emporio Armani sýndi einnig silfraðan gljáa, þó án bleiks kinnalits.

MAC eru með góða vöru til að gera gljáa á kinnbeinin, Cream Colour Base í litnum Pearl, en það er fölgylltur kremkenndur grunnur sem hægt er að nota á farðalausa húð eða ofan á farða, krem eða púður. Cream Colour Base er fjölnota og má því nota á kinnar, augu og varir. Hönnuðir völdu þó líka förðunarútlit sem innihélt minni silfur og einungis ferskan gljáa. Fyrir þá sem vilja fá glansandi kinnbein án silfur- eða gulláferðar þá er auðveldlega hægt að nota glært gloss, sem sást til dæmis hjá Eley Kishimoto.