Gyllt augnlok

65491241699667fegurdgull.PNG
Til vinstri: Nicole Richie. Efri röð: Dsquared2, Valentino. Neðri röð: Missoni, Versace.

Þegar sólin fer að skína og andlitið verður fallega brúnt eru gylltir augnskuggar alltaf flottir til að fá gljáa á augnlokin. Ítalskir hönnuðir voru sérstaklega hrifnir af þessum glamúrlit fyrir förðun sumarsýninga sinna. Oftast var sólarpúður notað til að framkalla meiri gljáa í andlitið en það fer afar vel við gylltan skugga. Annað hvort var vörunum haldið sem náttúrulegustum, eða notaður ljósbrúnn gloss og varablýantur, sem Nicole Richie sást til dæmis með fyrr á árinu.

Gylltu augnskuggarnir komu í nokkrum útgáfum á sýningarpöllunum og voru þær misýktar. Hjá Missoni var augunum haldið ferskum og ljósgylltur augnskuggi notaður á augnlokið og einungis maskari á efri augnhárin. Fyrir dramatískara gullútlit er hægt að líta til förðunarinnar hjá Valentino. Þar var gullskuggi settur í augnkrókana og svartur augnblýantur notaður til að ramma inn augun. Á augnlokin var svo mynduð smokey förðun með blöndu af svörtu og gulli – tilvalið fyrir fínni tilefni.