Hárgreiðsla Alice Dellal breiðist út
Frá vinstri: Fyrirsætur baksviðs hjá Alessandro Dell'Acqua, Alice Dellal á sýningarpalli Issa, fyrirsæta hjá Issa.
Bresk-brasilíska rokkaragellan Alice Dellal hefur vakið talsvert mikla athygli fyrir djarfa hárgreiðslu. Hún er með hliðarskiptingu, en hárið öðru megin er rakað og greiðir hún þykkt, liðað hárið allt á aðra hliðina þannig að rakaða hliðin sjáist. Hár Dellal hefur heillað hina einnig brasilísku Daniella Helayel, sem er hönnuður fyrir breska tískumerkið Issa, en hún fór þá leið að láta helming fyrirsæta vera með Dellal greiðslu þegar tískusýning Issa var haldin á tískuvikunni í London.
Helayel var ekki eini hönnuðurinn sem notfærði sér sérstakan hárstíl fyrirsæta, því Phillip Lim endurgerði einmitt hárgreiðslu einnar fyrirsætu sinnar fyrir allar hinar. Það þykir greinilega vinsælt að nota fyrirsætur með afgerandi hárstíl sem fyrirmynd. Á sýningu Issa gekk Dellal sýningarpallinn og á eftir henni gengu svo hinar fyrirsæturnar með eftirmynd hárs hennar, en þó var ekki farið svo langt að raka hálft höfuðið.
Dellal greiðslan sást ekki eingöngu á sýningu Issa, því sömu sögu var að segja á sýningu Alessandro Dell‘Acqua á tískuvikunni í Mílanó. Það væri því ekki ótrúlegt ef upp vakni Dellal sprengja á komandi mánuðum og fólk muni greiða hárið í djörfum stíl Alice Dellal, en margir hafa nú þegar reynt að herma eftir.
Tvær útgáfur sáust á greiðslunni, annars vegar þeirri sem sást hjá Dell‘Acqua og svo þeirri sem sást hjá Issa. Hjá Dell‘Acqua var greiðslan snyrtilegri, en þar var hárið sleikt niður á hliðinni með minna hári. Á hinni hliðinni, sem innihélt meirihluta hársins, var efri hluti þess einnig sleiktur niður til að það myndi ekki ýfast upp og svo voru endarnir liðaðir í Hollywood stíl.
Hjá Issa aftur á móti var tekin aðeins frjálslegri leið. Til að ná því lúkki án þess að koma nálægt rakvélarblaði, þá er annað hvort er hægt að taka hógværari leið og greiða hliðina með minna hári bakvið eyrað og nota fínlega hárspennu til að halda hárinu í skefjum. Eða hægt er að nýta sér hármótunarvörur og sleikja hárið aftur. Á hinni hliðinni var hárinu svo leyft að ýfast upp hjá skiptingunni en restin var svo krullað með stóru krullujárni.
