Hárumhirða yfir sumartímann
Þegar sólin skín yfir sumartímann passa flestir upp á að bera á sig sólarvörn, til að sporna gegn því að húðin brenni sem er bæði óþægilegt og fer illa með húðina. Það sem margir hins vegar gleyma er að passa upp á umhirðu hársins. Þess vegna þarf að gera ákveðnar ráðstafanir til að hárið verði ekki úfið, slitið og upplitað eftir sólargeisla, klór úr sundlaugum og saltið úr sjónum. Hægt er að fá ýmsar sumarvörur fyrir hárið og gegna þær mismunandi hlutverki. Gott er einnig að vera með stráhatt við höndina til að tylla á höfuðið öðru hverju, enda eru stráhattar afar heitir um þessar mundir.
Þær sem fara á sólarströnd eða eru mikið í sundi ættu sérstaklega að hugsa um að þrífa hárið með réttu vörunum. Redken eru með sérstakt sjampó til að nota eftir tíma í sólinni, Color Extend Sun After-Sun Shampoo (1), en það hreinsar leifar af salti og klór á meðan það gefur hárinu frískandi lykt. Þær sem þurfa mikla næringu og uppbyggingu ættu að nota góða djúpnæringu eða hármaska, eins og Daily Replenishing Beauty Cream fá Kérastase (2). Næringin er látin liggja í hárinu í nokkra klukkutíma og svo hreinsuð úr.
Sólarvörn fyrir hárið er einnig mjög mikilvæg. Aveda er með Sun Care Protective Hair Veil sprey (5) sem verndar hárið í allt að 16 tíma gegn sól, klór og salti, en lyktin af því er suðræn og áferðin á hárinu verður heilbrigð og glansandi. Fyrir Aveda aðdáendur þá fæst einnig hreinsunarsjampó (4) og maski sérstaklega gerð fyrir sól og sumar. Lifetex Sun Hair & Skin Hydrator frá Wella (6) er svo gott næringasprey fyrir hárið. Frá Tigi kemur Some Like It Hot Heat & Humidity Resistant Serum (3) sem mýkir illa farið hár eftir hita og raka og veitir því aukin gljáa.
Hvað mótunarvörur varðar þá veitir Sunshine Golden Jelly frá Wella (7) hárinu wet lúkk áferð sem sást m.a. á sýningarpöllunum fyrir sumarið. En til að ná fram ekta strandhári - fallegum og náttúrulegum liðum - þá fást sérstök strandsprey frá ýmsum merkjum. Spreyin innihalda saltvatnsformúlu sem framkallar svolítið ófullkomna og villta liði, en einnig nærandi efni sem passa að hárið haldi heilbrigði sínu. Þar koma til greina Beach Look Spray frá Garnier Fructis (9), Salt of Mine Wet‘n Dry Saltwater frá Gosh og hið fræga Surf Spray frá Bumble & Bumble (8).
