Helstu trendin í naglalökkum sumarsins

34761243613815fegurdneglur.PNG

Ein einfaldasta og jafnframt ódýrasta leiðin til að uppfæra útlitið er að lakka neglurnar í flottum litum. Á sumrin lýsast naglalökkin og dökkir litir víkja fyrir ljósari og skærari litum. Það eru þrenns konar stefnur í naglalökkum þetta sumarið. Sú fyrsta helst í hendur við gríðarstórt trend í fatnaði þar sem húð- og drapplitaðir skipa stóran sess, önnur snýst um bleika og kóralappelsínugula í hinum ýmsu tónum, en þriðja stefnan inniheldur ýmsa skæra liti eins og bláa og gula.

Húðlitaður, drapplitaður, fölbleikur og ýmsir ljósbrúnir litir eru afar hentugir fyrir þá sem vilja látlausa en smekklega liti á neglurnar. Paris frá Make Up Store (4) og Honeysuckle frá L‘Oreal (3) eru bæði húðlituð en Honeysuckle er örlítið dekkra. Allegoria frá Chanel (1) er svo aðeins meira út í bleikt en það naglalakk er hluti af Lumieres Celestes línunni. Satin Gold frá Estée Lauder (2) er fallega brúnn litur en súkkulaði og karamellutónar eru afar heillandi á neglur. Önnur ljós naglalökk sem vert er að skoða eru Django úr vorlínu Chanel, Sand In My Suit frá OPI og Coconut frá Dior.

Kóralappelsínugulir og rauðbleikir eru einstaklega ferskir og flottir á neglurnar. Í sumarlínunni frá Chanel komu tveir litir á neglur en annar þeirra kallast Orange Fizz og er ljósappelsínugulur og fer einstaklega vel við sólbrúna húð. Annar frá Chanel sem er svipaður en þó aðeins dekkri er Abricot Gloss (8). Í sumarlínu Dior er að finna flott lakk sem er blanda af bleiku og appelsínugulu en það kallast Bubble Gum (9). Flaming Orange frá Yves Saint Laurent (6) og OPI on Collins Ave (7) eru svipuð eða skærrauð með appelsínugulum blæ. Önnur bleikappelsínugul naglalökk sem vert er að skoða eru Orange You Cute? frá Sally Hansen og Mango-get-em frá L‘Oréal (5).

Skæru litirnir eru fyrir þá sem vilja smá áskorun í naglalökkum. Mintugrænir eins og Paula frá Make Up Store (10) eru ferskir án þess að vera allt of áberandi, en þeir sem vilja ögra sjálfum sér geta valið limegrænan, skærgulan eða sæbláan og notað við eitthvað að skæru litum sumarsins í fatnaði. Naglalakkamerkið OPI er með mikið úrval af björtum og skærum litum eins og hið appelsínugula In My Back Pocket (12) og skærbláa No Room For The Blues (11). Fyrir þá sem vilja prófa gult naglalakk er Need Sunglasses? frá OPI mjög flott.

Það er mikið úrval af allskonar naglalökkum núna fyrir sumarið og getur því hver sem er fundið liti sem henta, hvort sem þeir eru ljósir, kórallitaðir eða skærir. Litirnir sem hér eru valdir eru einungis uppástungur en gott er að hafa litatrendin til viðmiðunar og velja svo sinn uppáhalds lit fyrir sumarið. Naglalökkin sem hér eru nefnd koma best út á styttri nöglum og best er að halda sig frá lökkum með of miklu glimmeri. Þegar verið er að naglalakka neglur á höndum má svo ekki gleyma tánöglunum enda ekkert flottara en að sjá neglur á höndum og fótum í stíl nú þegar sumarsandalarnir eru teknir fram.

Athugið að mismunur getur verið á milli naglalakkanna á myndinni og eins og það raunverulega er, m.a. vegna lýsingar.