Hollywood glamúrlúkk Mary-Kate
Mary-Kate Olsen er, auk systur sinnar Ashley, þekkt fyrir djarfar tískuyfirlýsingar. Það var akkúrat það sem hún gerði um miðjan mánuðinn þegar hún mætti í samkvæmi með nokkuð breytt útlit. Í stað hæfilegra liðanna og miðjuskiptingarinnar var hárgreiðslan glamúrleg með djúpri hliðarskiptingu og miklum krullum. Það eru nokkuð skiptar skoðanir á útlitinu í netheimum, en þó voru margir sammála um að hún hafi í þetta sinn haft svolítið fyrir greiðslunni og förðuninni.
Augun voru förðuð í appelsínugulum koparlit og varirnar voru skærrauðar. Lúkkið er í svolitlum fortíðar Hollywood stíl, en þó með nútímayfirbragði. Neglurnar voru í stíl við varirnar, í skærrauðu, en rauði liturinn tónaði vel við svartan kjólinn. Hugsanlegt er að Mary-Kate hafi verið að reyna að færa sig í átt að fágaðri fegurð, en hún er þekkt fyrir úfið hár og svolítið heimilislaust hippaútlit. Það gæti verið að útlitið sé á betri veg fyrst hún hafði fyrir því að gera sig svona fína fyrir gala teitið.
