Hönnuðir sýna snúða fyrir sumarið
Efri röð: 3.1 Phillip Lim, Marni, Lanvin. Neðri röð: Dolce & Gabbana, Threeasfour, Vera Wang.
Snúðar voru vinsælir meðal hönnuða þegar koma að hárgreiðslum fyrir sumarlínur þeirra. Þeir sáust mikið hjá ítölskum hönnuðum eins og Marni, Prada og Dolce & Gabbana, en hin bandarísku Phillip Lim og Vera Wang sýndu einnig snúða á sínum fyrirsætum. Þeir voru nokkuð misjafnir milli hönnuða, til dæmis ákvað Phillip Lim að fara fágaða leið með svokölluðum beyglusnúðum sem voru á hlið höfuðsins. Hárið var sleikt aftur til að skapa sem snyrtilegustu útkomuna. Hjá Lanvin var tekin svipaður póll á hæðina og hárið sleikt aftur, en það sem var gert öðruvísi þar var að snúðarnir voru aftan á höfðinu, en ekki á hliðinni. Auk þess voru þeir unnir meira upp á við en ekki hafðir sem breiðastir eins og í beyglustílnum.
Hollywood stjörnur eru duglegar að hafa hárið í snúð á rauða dreglinum enda ein flottasta leiðin til að taka hárið frá andlitinu. Snúðarnir á sýningarpöllunum voru frekar snyrtilegir og ekki sást mikið af messý snúðum sem hafa verið nokkuð vinsælir undanfarið. Fyrir þá sem vilja látlausari útgáfu af snúðinum, þá er hægt að fara að fordæmi Marni. Þar var hárið tekið létt aftur og laus snúður settur neðarlega á hnakkann og aðeins til hliðar. Besta leiðin til að halda öllum aukahárum í skefjum er að nota mjóar hárspennur. Hársprey kemur líka að góðum notum og þær sem eru með úfið hár ættu að velja sjampó og næringu sem vinna á þeim vanda þar sem hárið var þarf að vera mjúkt og slétt þegar það er sett í svipaðan snúð og hjá Marni.
