Kókdósir og trúðar
Förðunin hjá Alexander McQueen var eflaust sú einkennilegasta af öllum sýningunum fyrir næsta haust. Peter Philips farðaði fyrirsætur fyrir tískusýninguna en förðunin tónaði vel andann í fatnaðinum og skónum sem var langt frá því að vera lágstemmdur. Philips segir sig og McQueen hafa verið innblásna af trúðum, dívum og franska látbragðsleikskarakternum Pierrot með svolitlu af Joan Crawford áhrifum.
Förðunin innihélt ótrúlega ýkta varaförðun þar sem skærrauðum og vínrauðum varalit var búið að mála langt út fyrir varirnar. Maður sér fyrir sér litlar stelpur að reyna að bera á sig varalit en geta ekki haldið sig innan varamarkanna. Þetta var vissulega frumlegt en mjög óklæðilegt í senn og eiginlega bara fyndið. Á restina af andlitinu báru fyrirsætur hvítt púður og voru augabrúnirnar sömuleiðis gerðar mjög ljósar, allt til að varagjörningurinn myndi njóta sín sem best.
Hárskrautið var svo ekki beint hefðbundið heldur, en hárstílistinn Guido Palau sá um það. Þemað var líkast til ruslahaugur en kókdósir voru meðal þeirra hluta sem búið var að binda um höfuð fyrirsætanna. Dósirnar voru mjög skúlptúraðar, þær voru spreyjaðar í svörtu og hvítu og teipaðar á höfuðin, sem búið var að vefja með nælonsokkaefni.
