Kollurnar hjá 3.1 Phillip Lim

79811237330483fegurdpm.PNG
Frá vinstri: Fyrirmyndin sjálf Tao Okamoto, fyrirsæta baksviðs, fyrirsætan Naty Chabanenko á sýningarpallinum.

Phillip Lim fór heldur sérstaka leið í hárgreiðslum fyrirsætanna á tískusýningu línu sinnar, 3.1 Phillip Lim, á tískuvikunni í New York á dögunum. Hárstíllinn var innblásinn af fyrirsætunni Tao Okamoto sem var einmitt ein af sýningarstúlkunum. Lim var svo hrifinn af Tao að hann lét hana opna sýninguna. Á eftir henni gekk svo hver fyrirsætan á eftir annarri, allar með sömu stuttu, beinskeyttu greiðsluna.

Hárgreiðslukonan Odile Gilbert fékk það hlutverk að endurskapa hár Tao en hárkollurnar sem hinar fyrirsæturnar báru voru ýmist ljósar, rauðbrúnar, dökkbrúnar eða svartar. Þar sem athyglin var mest á hárið var förðun haldið í lágmarki með augnhárin talsvert á sjónarsviðinu. Fyrirsætur fengu gerviaugnhár og maskara, en þó eingöngu á neðri aughnárin. Förðunarfræðingur sýningarinnar sagði að það hefði verið gert til að trufla ekki síðan topp hárkollana og til að leggja áherslu á annan hluta augnanna en þann efri.

Þar sem þónokkuð sixtís þema var yfir sýningunni gáfu bæði hárgreiðslan sem og gerviaugnhárin byr undir sixtís þemað á skemmtilegan og ferskan hátt. Aðrar förðunarvörur sem notaðar voru í sýningunni var gylltur augnblýantur á neðri augnháralínuna. Varirnar voru húðlitaðar með mattri áferð en það var gert með fljótandi farða og púðri og fengu varirnar þar af leiðandi á sig hálfgegnsæjan fíling.