Konur kaupa farða í kreppu
Farðaauglýsing frá Chanel; Pro Lumiére frá Chanel; Double Wear frá Estée Lauder; Perfect Touch frá Yves Saint Laurent.
Varalitavísitalan er þekkt hugtak í fegurðariðnaðinum, en hugtakið er haft eftir stjórnarformanni Estée Lauder fegurðarrisans, Leonard Lauder, sem sagði árið 2001, „þegar hlutirnir verða erfiðir kaupa konur varaliti." Fegurðariðnaðurinn virðist ekki fara eins slæmt út úr kreppunni og ýmsir aðrir iðnaðir. Þvert á móti virðast konur huga betur að útlitinu þegar kreppir að en á góðæristímabili.
Tengingin á milli vaxandi sölu á snyrtivörum og slæmum efnahag er tölfræðilega sönnuð en það lítur út fyrir að sú tenging eigi sérstaklega við um sölu ilmvatna hér á landi. Í febrúar tók Fréttablaðið út tvö stærstu snyrtivöruumboðin og spurðu þau út í sölu. Umboðin sögðu snyrtivörur seljast jafn vel og fyrr en greinileg aukning var á sölu ilmvatna. Þar kom einnig fram að konur kaupa ódýrari varaliti og farða, en eyða frekar peningum í lúxuskrem.
Í Bandaríkjunum og Bretlandi hefur mikið verið pælt í varalitavísitölunni nú þegar efnahagurinn er í lægð. Hins vegar herma nýjustu fréttir að farði sé tekinn við af varalitnum. Farðavísitalan, eins og hún er kölluð núna, fékk heiti sitt af könnun sem L‘Oréal gerði í Bretlandi þar sem könnuð voru snyrtivörukaup kvenna í yngri kantinum. Þriðjungur sögðu góðan farða vera lykilatriðið og styður það staðreyndina um að sala á farða hafi aukist um 15 % á síðasta ári.
Markaðsrannsóknarfyrirtæki í Bandaríkjunum hefur fundið fyrir sömu áhrifum á sölu farða þar. Varaliturinn er þó ekki úti því stjörnurnar hafa borið varaliti í miklum mæli undanfarið auk þess sem hönnuðir völdu að sýna fyrirsætur með ýmsa liti á vörunum fyrir haustið. Hvort sem þú velur bjartan lit á varirnar til að poppa upp á útlitið, eða lýtalausa húð, er ekki hægt að neita því að fallegt útlit og vel farðað andlit lætur öllum líða betur á tímum áhyggja.
