Kósý förðun hjá Matthew Williamson

55981237327945fegurdmw02.PNG

Förðunarmeistarinn Charlotte Tilbury farðaði fyrir sýningu Matthew Williamson í New York í febrúar. Augnförðunin var blanda af brúnum og gráum tónum og kinnarnar báru léttan bronzer. Meiri athygli var á varirnar, en Tilbury notaði múrsteinsrauðan varablýant og varalit. Förðunin í heild var eins og Tilbury segir sjálf, „mjög fullgerð á hlutlausan hátt".

Hún kom því á framfæri að dragdrottningar hefðu komið slæmu orðspori á varablýantinn, en bætti jafnframt við að hann væri mikilvægur, jafnvel nauðsynlegur, til að fá almennilega útkomu þegar notast er við varaliti. Blýanturinn vegur upp á móti varalitnum og lær fram skerpu. Það sem skal passa er að hann sé í svipuðum tón og varaliturinn til að forðast hið umdeilda ‘dragdrottninga‘ lúkk.

Tilbury notaði vörur frá MAC, varaliturinn er Half ‘n Half og varablýanturinn Stripdown.