Leggðu sléttujárninu fyrir liðað hár

91561241282328fegurdlidir.PNG
Alessandro Dell'Acqua; Anna Sui; Proenza Schouler; Gucci.

Ef sumarið er ekki tíminn fyrir fallega liðað hár, hvenær þá? Liðir voru síður en svo sjaldséðnir á fyrirsætum á tískuvikum sumarlínanna en ef tekið er mið af því er algjörlega málið að leggja sléttujárninu og taka upp krullujárnið í sumar. Þeir sem eru með liðað hár að eðlisfari þurfa auðvitað ekki hjálp frá krullujárninu, en þeir sem þess þurfa ættu að nota þykkt krullujárn svo að liðirnir verða stórir. Þegar búið er að liða hárið er best að renna fingrunum vel í gegnum það til að aðskilja liðina.

Liðir eru sumarlegir og þægilegir en þeir eru flottastir svolítið úfnir. Fyrir þá sem kjósa að nota ekki krullujárn er sniðugt að setja tvær lausar fléttur í hárið þegar það er blautt og taka þær svo úr þegar hárið er þornað, til dæmis eftir nótt, en þannig verða liðirnir ekki of fullkomnir. Fyrir þá sem hins vegar vilja minna magn af liðum og aðeins fágaðra yfirbragð, sem hentar fyrir fínni sumarkvöld, geta notað þykkt krullujárn í endana eins og sást hjá Gucci.