Listin að nota liti
Litagleðin er allsráðandi í nýrri förðunarlínu frá MAC sem kom til landsins ekki alls fyrir löngu. Línan kallast Colour Craft og inniheldur litskrúðuga varaliti og glossa, ásamt augnskuggum, kinnalitum og púðrum sem byggjast upp á steinefnum. Förðunarmeistarar þurfa að vera djarfir þegar kemur að því að nota liti, en það er akkúrat hugsunin á bak við Colour Craft línuna. Henni er ætlað að gefa konum tækifæri á að nota skæra liti á skemmtilegan og klæðilegan hátt.
Varaglossin koma í sex litum en hver og einn litur er blanda af þremur tónum sem blandast saman við ásetningu svo liturinn gefur flotta áferð með góðum gljáa. Það sem er hvað áhugaverðast við línuna eru án efa steinefnapúðrin sem koma einnig í sex litum. Steinefnin veita húðinni náttúrulegan ljóma ásamt því að gefa henni smá lit, en púðrin henta vel til að ‚highlita‘ andlitið. Augnskuggarnir eru einnig úr steinefnum en hver skuggi samanstendur af fjórum litum sem vel er hægt að nota alla saman til að mynda skemmtilega litablöndun. Gott ráð er að bleyta örlítið í skuggunum við ásetningu til að fá skarpari lit.
