Marc Jacobs fær heiðursverðlaun ilmvatnssamtaka

84571239890690fegurddaisy.PNG
Marc Jacobs; Daisy ilmurinn; FiFi verðlaunagripur.

FiFi verðlaunin eru þau virtustu í ilmvatnsbransanum. Verðlaunaafhending þessa árs verður haldin 27.maí í New York en afhendingin er talsverður atburður innan fegurðargeirans. Um 1000 manns úr alþjóðlega ilmvatnssamfélaginu mætir og eru það ýmsar stórstjörnur sem afhenda verðlaunin, en þau eru talin Óskarinn í ilmvatnaiðnaðinum.

Verðlaun eru veittt í ýmsum flokkum. Það er ilmvatn ársins, bæði karla og kvenna og eftir nokkrum tegundum. Einnig eru verðlaun fyrir hönnun á ilmvatnsflöskum ásamt auglýsingum. Meðal verðlaunahafa í fyrra voru Christian Lacroix Rouge, Coco Mademoiselle frá Chanel en Beckham hjónin fengu verðlaun fyrir bæði ilmvatn og rakspíra.

Velgengni Marc Jacobs í ilmvatnaiðnaðinum fór almennilega á stað í hittifyrra þegar hann kom með ilminn Daisy á markað. Daisy fékk tvenn FiFi verðlaun árið 2008, Besta lúxusilmvatnið og Fallegasta pakkningin. Daisy ilmurinn er kvenlegur með ferskum blómailm. Það er örlítill vintageblær yfir honum en hann er samt fágaður án þess að vera of þungur.

Það kemur því ekki á óvart að Marc Jacobs fái heiðursverðlaun FiFi þetta árið. Hann fetar í fótspor Veru Wang sem fékk heiðurinn á síðasta ári. Jacobs, sem hefur verið í ilmvatnagerð frá 2001, fær samkvæmt FiFi, verðlaunin fyrir „óvenjulega hugvitssemi, sköpunargáfu, tileinkun og innri úrræði...til ilmvatnsiðnaðarins í heild."