Ný hárgreiðsla Katie Holmes
Frá vinstri: Fyrir breytingar, eftir breytingar á rauða dreglinum í Tokyo.
Katie Holmes birtist á rauða dreglinum í Tokyo á dögunum með nokkuð breytta hárgreiðslu. Holmes, sem var búin að sporta töff ‘bob‘ hárstíl um tíma, hefur greinilega langað í langa, liðaða lokka þegar hún mætti á frumsýningu kvikmyndarinnar Valkyrie í Japan, sem eiginmaðurinn Tom Cruise leikur í.
Það virðist sem hárlengingarnar voru einungis ætlaðar fyrir þennan eina viðburð þar sem Holmes sást nokkrum dögum síðar með stuttu klippinguna. Þó að stutta klippingin hafi verið töff og fersk fyrst var hún orðin svolítið þreytt og því kærkomin breyting að sjá hana með lengri lokka sem eiginlega yngdu hana örlítið upp.
Liðir eru glamúrus hárgreiðsla sem eru þó oft flottastir náttúrulegir og ekki of fullkomnir. Þess vegna er best ef maður notar krullujárn að renna fingrunum aðeins í gegn um hárið í endann og aðskilja lokkana. Þannig fær maður lágstemmdari og líflegri liði.
