Old Hollywood glamúr Dolce & Gabbana
Nýja förðunarlínan frá Dolce & Gabbana hefur litið dagsins ljós. Eins og Tískuheimur.is greindi frá fyrr á árinu hugðu þeir Domenico Dolce og Stefano Gabbana á að brjóta sér leið inn í snyrtivörubransann í fyrsta sinn, og það nú í kreppunni. Hönnunarteymið völdu leikkonuna Scarlett Johansson sem andlit línunnar og hefur hún verið að kynna hana undanfarið. Scarlett kom við í Selfridges í London þar sem línan var afhjúpuð fyrir Bretana. Hún var klædd í fatnað innblásin frá fimmta áratugnum, með Veronica Lake liði í hárinu og förðuð með nýju Dolce & Gabbana vörunum.
Eins og við var að búast er förðunarlínan í anda gullaldar Hollywood þegar glamúrinn var ósvikinn og fólst í kvenlegri förðun. Scarlett er því hið fullkomna andlit línunnar en það sem henni líkar best við hana er hversu klassísk hún er en þó með nútímalegu yfirbragði. Á viðburðinum í Selfridges ákvað Scarlett að leggja áherslu á varirnar, en það var gert með því að nota Dolce & Gabbana Classic Cream Lipstick í litnum ‘Iconic‘. Ekki er víst að Íslendingar fái að kynnast vörunum í bráð en það er þó aldrei að vita; maður hefði allavega ekkert á móti því að komast yfir glamúr snyrtivörur í Scarlett Johansson stíl.
