Öruggar sólarvörur þróaðar af húðlæknum

39561244810189fegurdclinique.PNG

Þegar sumarið gengur í garð þarf að huga að snyrtivörum sem hæfa sólinni. Frá Clinique koma ýmsar nýjar vörur fyrir sumarið bæði fyrir þá sem vilja verða brúnir með hjálp sólarinnar sem og án hennar. Það vita allir hættuna sem fylgir sterkum geislum sólarinnar en með nýrri línu sólarvarnar frá Clinique er hægt að lágmarka þessa hættu enda góð vörn gegn bæði UVA geislum, sem elda húðina, og UVB geislum, sem brenna húðina. Í sólarvarnarlínunni, sem er heiðgul og flott á lit, eru krem fyrir líkama og andlit og sprey fyrir líkamann - allt með misjöfnum styrkleika. Einnig er hægt að fá krem til að nota eftir sólbað með róandi aloe vera.

Fyrir þá sem vilja hins vegar verða brúnir án sólar er komin ný útfærsla af sjálfsbrúnkulínu frá Clinique. Hún inniheldur ýmsar nýjungar og hefur fengið glænýtt útlit og er nú í fallega bronslituðum pakkningum. Það er þó ekki ytra útlit sem skiptir máli, innihaldið verður að standa fyrir sínu, sem vörurnar gera svo sannarlega. Ólíkt sumum brúnkuvörum þá verður húðin mjúk eftir notkun og liturinn verður eðlilegur. Þær vörur sem eru í sjálfsbrúnkulínunni eru krem fyrir líkama og andlit, bronsgel fyrir andlit, spray fyrir líkama og líkamskrem með innbyggðri sjálfsbrúnku. Hægt er að fá sumar þeirra í tveimur litum.

Vörurnar frá Clinique eru ilmefnalausar og prófaðar af topphúðlæknum. Þær fylgja öllum stöðlum og reglum sem settar eru fyrir snyrtivörur innan Evrópu. Hjá Clinique gengur maður að virtum snyrtivörum sem eru öruggar og henta öllum húðgerðum. Aðalmarkmiðið er heilbrigð húð og því eru vörurnar allar ofnæmisprófaðar og án yfirgnæfandi ilmefna. Þær sem vilja öðlast fallega brúna húð í sumar – í sólinni eða án sólar – ættu að geta fundið vörur við hæfi innan Clinique.