Platínum frá Bobbi Brown

59941242475418fegurdplatinum.PNG

Eitt af því nýjasta frá Bobbi Brown fyrir sumarið er platínumlínan. Línan samanstendur af kinnalit, kremaugnskugga og tveimur tegundum af glossi, með og án gljáa. Yfirskrift línunnar er glampi sem lífgar upp á andlitið þannig að það ljómar eins og platínum, eða hvítagull. Það sem er hentugt við platínumlínuna er að það eru ekki of margar vörur og litir í henni og því hefur hver vara sinn tilgang í að ná fram ákveðinni förðun.

Kinnaliturinn er fimmlita og blandast litirnir saman þegar hann er borinn á. Litirnir eru ljósbleikur, platínum, dökkbleikur, kóralgylltur og rósrauður. Því er nokkurn veginn hægt að stjórna hvernig liturinn verður á kinnunum með því að nota meira af ljósari endanum eða meira af dekkri endanum – eða einfaldlega blanda öllum saman fyrir flottustu útkomuna. Kinnaliturinn er ekki aðeins ætlaður á kinnar, hann má einnig nota til að fá aukinn gljáa annars staðar í andlitið og er einnig hægt að nota einstaka liti sem augnskugga.

Augnskuggarnir eru kremkenndir með flauelsmjúkri áferð. Formúlan hefur unnið til verðlauna enda helst hún á allan daginn án þess að kámast. Litirnir fyrir kremskuggann eru fjórir, ljósfjólublár, silfur, brúnn og dökkbrúnn. Fyrir fágað og fagmannlegt útlit er best að bera kremskuggan á hreint augnlokið, þ.e.a.s. án annars augnskugga, annað hvort með pensli eða hreinum fingrum. Hægt er að blanda saman litum að vild og fer það einungis eftir óskum hverjum og eins.

Varaglossin koma í þremur litum, með gljáa eru það silfurlitaður og ljósbleikur en án gljáa er það drapplitaður. Allir glossarnir þrír eru með dýrindis vanillulykt. Gljáaglossinn er bæði hægt að nota einan og sér fyrir léttara útlit, eða yfir varalit fyrir dramatískara útlit. Glossinn án gljáa er með róandi efnum á borð við jojoba olíu, chamomile olíu og blaðliljuseyði til að halda vörunum mjúkum.