Rauður er liturinn

91281244506926fegurdrautthar.PNG
Frá hægri: Amy Adams (efri), Isla Fisher (neðri), Ashlee Simpson, Evan Rachel Wood (efri), Coco Rocha (efri), Karen Elson (neðri), Lily Cole, Vlada Roslyakova.

Undanfarið virðist sem rautt hár hafi orðið vinsælla bæði meðal fyrirsæta sem og stjarnanna. Þeir sem vilja ekki lita hár sitt eldrautt geta farið þá leið að setja gylltan tón í brúnt hár sem gefur hárinu flottan og öðruvísi blæ. Auðveldast er að lita hárið eldrautt ef það er ljóst fyrir en rautt hár er talsverð breyting. Það eru til margir tónar af rauðum lit eins og sést hér að ofan, allt frá ljósappelsínugulu í dökk rauðbrúnt. Það er eins með háraliti og varaliti, það er alltaf til réttur tónn fyrir hverja eina og fer það eftir hörundslit og jafnvel augnlit hve dökkur hann er. Þær sem eru með rautt hár fyrir, geta ef til vill skerpt á litnum með því að gera hann dekkri og fengið þannig meiri dýpt í hann. Ekki má gleyma að varðveita litinn vel með góðu sjampói og næringu sem er annað hvort sérstaklega hannað fyrir rautt hár eða allavega fyrir litað hár.

Rússneska fyrirsætan Vlada Roslyakova ákvað að skipta yfir í rauðan háralit í byrjun ársins eftir að hafa verið með ljóst hár lengi. „Ég vildi breytingu," var eina ástæðan sem fyrirsætan gaf, en hún fékk vinsælan hárlitasérfræðing til að útfæra litinn. Athygli vakti svo þegar kanadíska fyrirsætan Coco Rocha litaði hárið á sér rautt fyrir myndasyrpu í síðasta janúar tölublaði af ameríska Vogue. Þar sem myndirnar voru teknar nokkuð áður en blaðið kom út þurfti hún að halda nýja háralitnum leyndum í svolítinn tíma en Rocha skipti þó rauða litnum nýverið út fyrir svart. Aðrar fyrirsætur sem er þekktar fyrir að vera rauðhærðar eru Olga Sherer, sem er reyndar dökkhærð núna, og hin breska Lily Cole.

Nokkrar leikkonur eru sömuleiðis þekktar fyrir fallega rautt hár sitt, þar á meðal eru þær Amy Adams og Isla Fischer en þær eru báðar rauðhærðar frá náttúrunnar hendi. Söngkonan Ashlee Simpson hefur verið með eldrautt hár í þó nokkurn tíma en nýjasta stjarnan til að lita hárið rautt er leikkonan Evan Rachel Wood. Ein vinsælasta rauðkan í Hollywood er án efa Lindsay Lohan sem hefur verið iðin við að lita hár sitt síðustu árin, en alltaf hefur hún farið aftur í rauða litinn inn á milli. Hvað tískukvendi varðar þá er fatahönnuðurinn Sonia Rykiel með fallega rautt hár, sem er einmitt eitt af einkennismerkjum hennar. Málið með rauða litinn er að hann er mjög persónueinkennadi og verður eitt aðalsmerkja þeirra sem hann bera.