Rósir og rómantík frá MAC

10181243335525fegurdroseromance.PNG

A Rose Romance er ný förðunarlína frá MAC sem samanstendur af rómantískum litatónum. Línan er innblásin af rómantíska blóminu, rósinni. Rósin er hefð í hátískunni og hið eina sanna tákn ástarinnar. Öll vöruheiti í rósalínunni eru tilvitnanir í frægu blómategundina og ástina, eins og Silverthorn og Steal My Heart. A Rose Romance línan er stíluð inn á sumarið með bleikum, rauðum og plómulitum í aðalhlutverki. Í línunni er að finna ýmsar vörur fyrir varir, augu og kinnar ásamt naglalakki, ilmvatni og frískandi vítamínvatni. A Rose Romance er væntanlegt í verslanir MAC í Kringlunni og Debenhams í vikunni.

Augnskuggarnir í A Rose Romance eru fimm talsins og eru þeir allt frá því að vera silfurlitaður í dökkfjólubláan. Tvö pigment koma með línunni, annað er í fjólubláum plómulit en hitt er í skær sæbláu og virðist í fyrstu ekki passa inn í bleika umhverfið sem A Rose Romance línan stendur fyrir, en þar sem liturinn kallast Mutiny eða uppreisn er honum líklega ætlað að veita bleiku litunum meiri dýpt, fyrir þá sem þora. Kinnalitirnir koma í tveimur mismunandi bleikum tónum með skemmtilegu rósamunstri. Þeir eru báðir mildir og gefa kinnunum léttan bleikan blæ. Það er einnig að finna maskara í línunni, Slashproof Lash, ásamt úrvali af varalitum og varaglossum í bleikum litum. Naglalakk línunnar er ljósfjólublátt og er einstaklega smart á neglurnar nú í sumar.

Áhugaverðustu vörurnar í A Rose Romance línunni eru gelkinnaliturinn Just a Pinch, gegnsæju glossin See Thru og vítamínvatnið Fix + Rose. Gelkinnaliturinn kemur í rauðum lit sem gefur frísklegar eplakinnar. Gegnsæja glossið er einnig ótrúlega sniðugt en það er mjög þunnt og gefur örlítinn lit og minni gljáa en hefðbundið gloss. See Thru Lip Colour kemur í þremur litum; ljósbleikum, berjarauðum og plómulitnum Tender Tryst sem er tilvalinn fyrir þær sem vilja svolítið dökkan lit á varnirnar til tilbreytingar. Að lokum er það Fix + Rose sem er vítamínvatn með ýmsum róandi efnum og 100 prósent náttúrulegum vökva úr rósum. Fix + Rose er fullkomið í að nota eftir förðun til að fá aukin ljóma í andlitið og fríska upp á rómantísku förðunina.