Steinefnin hafa vinninginn

64671247055354fegurdsteinefnavorur.PNG
Efri röð: Tropique Minerals Smoothing Bronzing Loose Powder frá Lancome; Diorskin Nude Natural Glow Fresh Powder Makeup SPF 10 frá Dior; Natural Minerals Foundation frá Max Factor; Nutritious Vita-Mineral Makeup SPF 10 frá Estée Lauder. Neðri röð: Nature's Minerals Eye Color augnskuggar frá Body Shop; Pure Finish Mineral Powder Foundation SPF 20 frá Elizabeth Arden; Redness Solution Instant Relief Mineral Powder frá Clinique; Mineralize SPF 15 Foundation/Loose frá MAC.

Förðunarvörur með steinefni sem undirstöðuefni hafa verið að aukast í vinsældum síðustu misserin. Þó að annar hver snyrtivörurisinn sé kominn með einhvers konar útgáfur af steinefnaförðunarvörum, þá má segja að konan sem þakka má upphaf vinsældanna sé Leslie Blodgett. Leslie er forstjóri Bare Escentuals sem er þekkt merki í Bandaríkjunum og selur náttúrulegar snyrtivörur þar sem áhersla er lögð á steinefni. Steinefnapúðrið þeirra, BareMinerals, er mest selda förðunarvaran í snyrtivöruversluninni Sephora, en Leslie hóf framleiðslu á púðrinu árið 1994. Fyrst var því beint að konum sem gátu af einhverjum ástæðum ekki notað annars konar farða eða voru með viðkvæma húð. Nú notar önnur hver kona einhvers konar steinefnaförðunarvöru, en það sem er svo einstakt við púður af þessari gerð er að áferðin verður lýtalaus en farðinn er samt sem áður léttari.

Fyrst um sinn þóttu steinefnapúður áhugaverð sökum náttúrulegra innihaldsefna, fyrir utan þá fallegu náttúrulegu áferð sem húðin fékk. Nú bjóða mörg snyrtivörumerki upp á púður, augnskugga og kinnaliti úr steinefnum, þó að náttúruleikinn sé að vísu ekki jafn mikill í öllum þeim vörum. Það á þó ekki við um Body Shop, sem hefur löngum verið þekkt fyrir umhverfisvænar vörur, en þeir bjóða upp á steinefnalínu gæddum miklum gæðum ásamt því að vera á viðráðanlegu verði. Þeir sem vilja örlitla brúnku í andlitið með hjálp steinefnapúðra þurfa ekki að örvænta því Lancome kom núna fyrir sumarið með áhugavert sólarpúður úr steinefnum sem kallast Tropique Minerals. Það allra nýjasta frá Lancome er þó Ageless Minérale steinefnalínan sem birtir yfir húðinni og felur í leiðinni öll ummerki öldrunar. L'Oréal býr eflaust yfir einna mesta úrvalinu á þessu sviði, en þeirra steinefnalína, Bare Naturale, er afar vegleg og inniheldur farða, púður, eye liner, augnskugga og margt fleira.