Stjörnurnar í fegurðarauglýsingum
Efri röð: Jessica Biel, Kate Winslet, Julia Restoin-Roitfeld. Neðri röð: Freida Pinto, Evangeline Lilly.
Undanfarinn mánuð hafa fréttir um stórstjörnur sem andlit fegurðarmerkja flugið fjöllunum hærra. Fyrr í maí var það tilkynnt að Jessica Biel væri nýtt andlit bandaríska snyrtivörufyrirtækisins Revlon og verður hún í góðum félagsskap þeirra Elle Macpherson og Jessicu Alba sem báðar eru talsmenn og andlit Revlon. Í sömu vikunni sögðu forsvarsmenn Lancome að þeir höfðu valið Óskarsverðlaunaleikkonuna Kate Winslet sem andlit tveggja nýrra förðunarlína sem koma nú um mitt sumarið. Winslet var fyrir andlit Tresor ilmsins frá Lancome og ætti því að þekkja til starfsins.
Julia Restoin-Roitfeld, dóttir ritstýru franska Vogue, var svo valin sú heppilegasta fyrir auglýsingaherferð nýs ilmvatns á vegum Jil Sander sem ber einfalda nafnið Jil og er væntanlegur í ágúst. Roitfeld er kunnug fyrirsætustörfum ilmvatnsauglýsinga þar sem hún var andlit Black Orchid ilms Tom Ford. Allar fyrrnefndar konur eru ekki bara fallegar og hæfileikaríkar heldur munu þær eflaust hjálpa til við markaðssetningu snyrtivörufyrirtækjanna þar sem stjörnuprófíll hefur mikil áhrif á ákvarðanir neytenda.
Hér er þó listinn ekki fulltalinn, því ein stærsta tilkynningin var frá franska snyrtivörurisanum L‘Oréal sem nældi í Slumdog Millionaire stjörnuna Freidu Pinto. Indverska fegurðardísin er eitt tveggja nýrra andlita L‘Oréal en hitt er Lost leikkonan Evangeline Lilly. „Við heilluðumst af velgengni þeirra sem leikkonur," sögðu yfirmenn L‘Oréal þegar þeir opinberuðu fréttirnar. Ekki er enn búið að birta auglýsingamyndir leikkvennanna en ekki líður á löngu þar til andlit þeirra munu prýða tímaritin.
