Svarthvítt, grænt og bleikt hjá Chanel

81351239103023fegurdchanel.PNG

Förðunin var ekkert síðri en draumkennd hönnunin á sýningu Chanel fyrir næsta haust og vetur sem fram fór í París nýlega. Þar voru augun í forgrunni og vörunum haldið náttúrulegum. „Mér var sagt af Karl [Lagerfeld] að línan innihéldi aðallega svartan, hvítan, bleikan og örlítið af ljósgrænum," sagði listrænn stjórnandi förðunar í sýningunni, Peter Philips um innblásturinn. Hann ákvað því að gera andlit fyrirsætanna „grafísk en mild á sama tíma" með svörtum gerviaugnhárum með hvítum glitrandi dropum á neðri augnhárum.

Hvað augnskugga varðar þá notaði hann hina tvo litina í sýningunni, bleikan og grænan, „ég elska að vinna mjög mjúklega í kringum augun með grágrænum eða ljósbleikum augnskuggum, og draga athyglina að nöglunum með rauðum eða ljósgrænum." Ljósgræna naglalakkið var sérstaklega gert fyrir sýninguna og því ekki fáanlegt í naglalakkalínu Chanel eins og er, en þeir sem vilja prófa grænar neglur er þetta algjörlega rétti liturinn og alls ekki ósvipaður mintugræna lakkinu úr Sugarsweet línunni frá MAC, en sá litur kallast Peppermint Patti.

Sá sem sá um hár fyrirsætanna í sýningunni var hárgreiðslumaðurinn Sam McKnight. Í samvinnu við Karl Lagerfeld ákváð hann að halda hárinu einföldu, „ég vildi láta stelpurnar líta unglega og ferskar út" sagði McKnight eftir sýninguna. „Ég þurfti mótvægi frá mjórri útlínu fatnaðarins þannig ég valdi dempað lúkk," en hann sagði sig og Lagerfeld hafa viljað skapa útlit á hárinu sem var náttúrulegt og virtist eins og fyrirsæturnar hefðu verið útivið. Hann notaði því krullujárn en greiddi svo í gegnum hárið þannig að liðirnir urðu ójafnir og lausir í sér. Eitthvað sem allir geta ráðið við.