Sykursætt vor hjá MAC

76661238671922macsugarsweet.PNG

MAC snyrtivörur sendu nýlega frá sér nýja förðunarlínu fyrir vorið sem kallast Sugarsweet. Líkt og nafnið gefur til kynna byggja litirnir á sykursætum kökum og sætindum. Þeir eru margir hverjir í pasteltónum en þar meðal annars koma við sögu bleikur, mintugrænn og ferskjulitaður og eru þeir með freistandi heiti á borð við Dear Cupcake, Sweet Thing og Tasty.

Í Sugarsweet línunni er meðal annars að finna augnskugga í fimm litum ásamt Shadestick sem er augnskuggi í eins konar pennaformi og kemur einnig í fimm litum. Varalitirnir eru bleikir, fjólubláir og brúnir, en það er þó glossinn sem er hvað eftirtektarverðastur en hann er þrílita og með perlugljáa. Lögin af litunum blandast svo saman þegar glossinn er borinn á varirnar.

Línan inniheldur einnig maskara, gerviaugnhár, flauelsmjúkt púður ásamt naglalökkum í tveimur litum, mintugrænu og ferskjulituðum. Fyrir þá sem vilja fá sykrað og sætt sumar eru Sugarsweet vörurnar tilvaldar til að létta á andlitinu eða nöglunum eftir þyngri vetrarförðun og svartar neglur. Línan kemur í verslanir MAC í Kringlunni og Debenhams eftir helgi.