Vængjuð augnförðun

92981245345284fegurd80saugu.PNG
Efri röð: Mischa Barton, Eva Green, Costume National. Neðri röð: Kate Moss, Roisin Murphy, Ermanna Scervino.

Tískan í dag tekur mikinn innblástur frá níunda áratugnum, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Þau áhrif má sjá í fatnaði sem og förðun. Stjörnurnar, allt frá Kate Moss til Roisin Murphy, hafa sést undanfarna mánuði með augnförðun innblásna frá áratugnum en það er svokallaður vængjaður augnskuggi sem er einhvers staðar á milli þess að vera  í smoky og cat eye stíl. Þessi förðun sást einnig á sumartískusýningum Valentino, Basso Brooke, Costume National og Ermanna Scervino. Augnförðun er almennt nokkuð dökk í sumar en þessi hentar þó frekar að kvöldi til heldur en um hábjartan dag.

Ekki er afar flókið að leika þessa förðun eftir. Það eina sem til þarf eru dökkir augnskuggar, hugsanlega dökkgrár og annar ögn ljósari. Góður maskari er einnig nauðsynlegur og þær sem vilja geta einnig sett augnblýant í kringum augun. Neðri hluti augnloksins er fyrst skyggður með báðum skuggunum og svo er ljósari liturinn dregin út fyrir augnlokin þannig það myndist einskonar vængjaeffekt. Hægt er að leika sér með skyggingu á augnlokinu sjálfu og þær sem vilja geta notað dökkbláa eða brúna í stað þess gráa. Best er að hafa förðunin væga og draga skuggann ekki of langt út til hliðanna.

Vörurnar á myndinni eru eftirfarandi. Eye Kohl augnblýantur í Phone Number frá MAC; Les 4 Ombres Quadra augnskuggar nr. 93 Smoky Eyes frá Chanel; Micro Shadow augnskuggi í Pollution frá Make Up Store; Diorshow Blackout maskari frá Dior.