28. forsíða Kate Moss fyrir breska Vogue
September forsíða breska Vogue markar þá 28. sem Kate Moss situr fyrir á forsíðu tímaritsins. Bretarnir eru greinilega hrifnir af ofurfyrirsætunni sinni því Moss hefur að minnsta kosti sitið fyrir forsíðu breska Vogue einu sinni á hverju ári frá 1993. Þar af eru september forsíðurnar flestar, eða fimm talsins. September forsíða þessa árs er tekin af Mario Testino og klæðist Moss Burberry rykfrakka við áberandi yfirlýsingarhálsmen.
Moss er ekki af baki dottin í fyrirsætuheiminum því hún birtist einnig á september forsíðum W og rússneska Vogue. September blöð tímarita eru þau mikilvægustu og hafa ritstjórar fyrrnefndra tímarita því greinilega áttað sig á því að Moss selur. Miðað við þá miklu eftirspurn eftir fyrirsætunni má telja að sumarleyfið sem hún hefur verið í síðasta mánuðinn er langþráð frí frá forsíðumyndatökunum.
