Adriana Lima fyrir Givenchy

78121243878068frettirgivenchy.PNG
Adriana Lima í hinni vinsælu Victoria's Secret tískusýningu; Lima á sýningarpalli Givenchy; Lima í auglýsingaherferð Givenchy.

Fyrirsætan Adriana Lima, sem er best þekkt fyrir fyrirsætustörf sín fyrir undirfatakeðjuna Victoria‘s Secret, hefur fært sig ofar í tískuheiminum og birtist í haustherferð franska tískuhússins Givenchy. Mörgum þótti undarlegt að Adriana hafi verið valin til að ganga sýningarpallinn í haustsýningu Givenchy en skýringin er nú fundin. Adriana, sem tilkynnti í síðustu viku að hún ætti von á barni, er ekki eina fyrirsætan í herferðinni, en þær eru fimm talsins. Í aukahlutaauglýsingum Givenchy sat Iris Strubegger fyrir hjá ljósmyndaranum Mark Pillai.

Það eru hins vegar þeir Mert Alas og Marcus Piggott sem eru ljósmyndarar haustherferðarinnar en þeir hafa áður verið ljósmyndarar fyrir auglýsingar Louis Vuitton. Stefna haustherferðar Givenchy er örlítið frábrugðin öðrum auglýsingum frá tískuhúsinu að því leytinu til að hún er ekki tekin í svarthvítu. „Þetta er nýtt skref. Ég vildi veita tilfinninguna að fara úr stúdíói í raunveruleikann. Það er mikilvægt að gefa konum raunveruleika," tjáði yfirhönnuðurinn Riccardo Tisci sig um auglýsingarnar. Umhverfi myndanna er hótel í antík stíl með ríkulegu yfirbragði.