Agent Provocateur með hátískulínu
Teikning fyrir Agent Provocateur Soirée línuna; fyrirsætan Rosie Huntington-Whiteley situr fyrir Agent Provocateur, þó ekki í hátískunærfötunum.
Eðalnærfatamerkið Agent Provocateur hefur ákveðið að breiða út seglin nú í miðri kreppu. Eins og nærfötin hafa ekki verið nógu fín fyrir þá hafa þeir hleypt af stokkunum nýrri hátískulínu sem verður meira eðal en aðallínan. Línan kallast Agent Provocateur Soirée og fer í verslanir merkisins í nóvember. Swarovski kristallar prýða hátískunærfötin sem eru úr blúndu og öðrum ríkulegum efnum, þar með talið ítölsku leðri. Verðin eru, eins og við má búast, himinhá, eða allt upp í 5000 dollara sem er hvorki meira né minna en tæpar 650 þúsund íslenskar krónur.
Agent Provocateur hefur jafnframt tilkynnt að þeir ætli að sýna hátískulínuna á tískuvikunni í New York í september. Þar með fær Victoria‘s Secret tískusýningin smá samkeppni því nærfatarisinn snýr aftur með sýninguna sína til Stóra Eplisins eftir nokkra ára fjarveru. Hátískunærföt Agent Provocateur munu eflaust ekki gefa glæstum nærfötum Victoria‘s Secret neitt eftir. „Agent Provocateur Soirée er hátindur fantasíu og lúxuss. Línan er gerð eftir hátískuhefðinni og samanstendur af bestu mögulegu gæðunum,“ segir listrænn stjórnandi og stofnandi Agent Provocateur, Joe Corre.
