Agyness Deyn í Uniqlo herferð
Auglýsingamyndir með Agyness Deyn fyrir japönsku fatakeðjuna Uniqlo hafa farið eins og eldur um sinu um netheima. Myndirnar eru hluti af herferð fyrir sumarlínu Uniqlo þar sem Agyness klæðist skærlita flíkum á borð við bleikar stuttbuxur og hettupeysu. Auglýsingarnar voru teknar í New York af ljósmyndaranum Dan Jackson en það var karlfyrirsætan Gabriel Aubry, kærasti Halle Berry, sem sat fyrir með Agyness.
Agyness Deyn er ein af vinsælustu fyrirsætunum í dag en hún hefur verið í auglýsingaherferðum lúxusmerkja á borð við Burberry Prorsum og Jean Paul Gaultier. Uniqlo er þó af annarri gerð en þau merki þar sem keðjan selur ódýrar grunnflíkur í ýmsum litum. „Agyness endurspeglar fersku, unglegu og líflegu hlið lífsins, sem var fullkomið fyrir herferðina," sagði markaðsstjóri Uniqlo í Bretlandi.
Um miðjan apríl birtust paparazzi myndir af þeim Agyness og Gabriel í tökunum og velti fólk fyrir sér hvaða fyrirtæki ætti þar í hlut. Forstöðumenn Uniqlo hafa verið að reyna að koma Uniqlo meira inn á tískubrautina með því að vinna með vinsælu hönnuðunum Alexander Wang og Phillip Lim og nýlega tilkynntu þeir nýjan listrænan stjórnanda, og er það engin önnur en Jil Sander. Sumarlína Uniqlo fer í sölu 1.júní í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Fyrir neðan má sjá auglýsingamyndbrot með þeim Agyness og Gabriel.
.
