Alessandro Dell'Acqua fer frá Malo
Alessandro Dell'Acqua; sumarlína Malo 2009.
Eftir aðeins eitt ár sem yfirhönnuður Malo, er Alessandro Dell‘Acqua á förum frá tískuhúsinu. Næsta lína sem verður opinberuð frá Malo er sumarlína ársins 2010 en hún verður hönnuð af teymi hönnuða sem munu einbeita sér að kjarna merkisins, prjónaflíkum. Eigandi Malo, IT Holding, hefur átt í fjárhagserfiðleikum og fór á hausinn í lok febrúar.
Talsmaður Malo segir stöðu Dell‘Acqua hafa orðið flóknari, „það var nauðsynlegt að skera niður kostnað og einbeita okkur að minni línum, fara aftur til klassíska Malo. Línurnar þurfa ekki sýningarnafn eða listrænan stjórnanda. Það er skynsamlegt að velja teymi." Dell‘Acqua sagði sjálfur að þetta hafi verið erfið staða og að það hefðu verið vandræði með birgðasala Malo.
Hugsanlegt er að nýtt fyrirtæki taki yfir Malo og þá gæti nýr yfirhönnuður komið seinna meir til starfa. Nú þegar hafa mörg fyrirtæki áhuga á þessu rótgróna tískuhúsi sem var stofnað 1972. Hvað varðar Dell‘Acqua þá mun hann einbeita sér að sínu eigin merki í eigin nafni. Hann hefur ekki í huga að verða ráðgjafi fyrir önnur tískuhús á næstunni „nema kannski fyrir línu staðsetta í París. Það væri draumurinn," sagði hönnuðurinn.
