Alexa Chung í haustauglýsingum DKNY

frettirdkny.PNG

Alexa Chung í haustherferð DKNY Jeans; Daisy Lowe í sumarherferðinni; Hilary Duff í haustherferð Femme.

Breski sjónvarpskynnirinn Alexa Chung fékk nýverið sinn eigin þátt á MTV og flutti þvert yfir Atlantshafið, nánar tiltekið til New York, í þeim tilgangi. Hún er stjarnan í haustherferð DKNY Jeans og tekur við af samlanda sínum, Daisy Lowe, sem var andlit merkisins í sumarherferðinni. Það var enginn annar en hinn margrómaði Schott Schuman frá blogginu The Sartorialist sem myndaði Alexu fyrir herferðina og er því svolítill götustílsandi yfir myndunum.

Fólkið hjá DKNY hrifust eins og svo margir af persónulegum stíl Alexu og því hafi hún verið fullkominn kandídat í verkefnið, auk þess sem hún er nú orðin nokkuð vinsæl í Ameríkunni. Í herferðinni klæðist Alexa nokkuð harðara og meira töff útliti en hún vanalega stendur fyrir. En auk herferðarinnar með Alexu í fararbroddi verða einnig settar í umferð auglýsingar fyrir línuna Femme sem DKNY framleiðir. Það er leik- og söngkonan Hilary Duff sem lagði fram hjálparhendur við gerð línunnar en hún er jafnframt fyrirsæta auglýsinganna.