Alexander Wang hannar fyrir Gap

75771243517772frettirgap.PNG
Flíkur úr línum allra hönnuðanna fyrir Gap; Alexander Wang; Lisa Mayock og Sophie Buhai sem mynda Vena Cava; Albertus Swanepoel.

Úrslitaaðilar sem eiga þann möguleika að öðlast tískustyrk frá CFDA, félagi amerískra fatahönnuða, og Vogue fengu að hanna flíkur fyrir hönnunarseríu Gap. Í úrslitum um þennan eftirsótta styrk eru Albertus Swanepoel, Vena Cava og Alexander Wang, sem er eflaust þekktastur af þessum þremur tískumerkjum. Öll hönnuðu þau flíkur úr kakíefni sem voru með dálitlum safarí innblæstri. Kakíflíkur hafa oft ekki verið talin mjög smart en hönnuðunum tókst þó að færa smartheit í þetta frekar leiðinlega efni. Alexander Wang hannaði meðal annars töff kakímótorhjólajakka eins og honum einum er lagið, Vena Cava dúóið hönnuðu flotta kjóla með munstri en Albertus Swanepoel gerði hatta.

Flíkurnar í línunni endurspegla listræna sýn hvers hönnuðs fyrir sig en halda samt eftir klassísku og þægilegu yfirbragði sem Gap stendur fyrir. Hönnuðir sem áður hafa hannað fyrir hönnunarseríu Gap eru meðal annars Doo Ri Chung, Kate og Laura Mulleavy (Rodarte), Thakoon Panichgul, Phillip Lim og Scott Sternberg (Band of Outsiders). Öll þurftu þau að endurskapa hina klassísku hvítu skyrtu en í ár þótti yfirhönnuði Gap, Patrick Robinson, tilvalið að fá hönnuðina til að gera eitthvað skemmtilegt úr kakíefninu. Áskorunin var krefjandi, „en þegar þú skorar á hæfileika sem þessa...þá er þetta auður strigi," segir Robinson um þá möguleika sem hönnuðirnir höfðu.

„Við erum uppveðruð að fá tækifæri til að bjóða næstu kynslóð hönnunarhæfileika í Ameríku grundvöll, vekja meðvitundina á vinnu þeirra um allan heim, auk þess að geta boðið viðskiptavinum okkar aðgang að hönnun þeirra á viðráðanlegu verði," sagði Robinson. „Ég var sérstaklega spenntur fyrir því að bæta vídd í verkefnið þetta árið með því að bjóða hönnuðunum að vinna með kakíefni sem er hjarta Gap. Ég elska það að þau náðu öll að fanga anda Gap um afslöppuð þægindi á velheppnaðan hátt, á meðan þau héldu fast í sína eigin fagurfræði, og sköpuðu þrjár eftirsóttarverðar línur." Línan fer í sölu í Gap verslanir um miðjan júnímánuð.