Anna Sui hannar Gossip Girl línu

18731242317951frettirannasui.PNG
Jessica Szohr, leikkona í Gossip Girl, ásamt Önnu Sui; haust- og vetrarlína Anna Sui 2009-10; aðalpersónur Gossip Girl.

Fatahönnuðurinn Anna Sui er næsti hönnuður til að hanna fyrir Target keðjuna. Fyrsti hönnuðurinn sem fór í samstarf við Target í sérstakri hönnunarseríu var hinn breski Alexander McQueen en aðrir hönnuðir í seríunni eru Anya Hindmarch, Luella Bartley og Proenza Schouler. Talsmaður Target segir línuna eiga að gera Target tískuvænna. „Við erum að leita að hönnuðum sem eru djarfir og hafa eitthvað einstakt fram að færa ásamt því að deila okkar hugsjón."

„Ég hef alltaf verið aðdáandi samvinnu hönnuða við smásöluverslanir fyrir almenna borgara. Ég tel þetta góða leið til að færa tískuna til allra," sagði Sui í nýlegu viðtali. Línan sem Anna Sui mun gera fyrir lágvörukeðjuna verður þó eflaust frábrugðin fyrri hönnunarlínum Target á þann hátt að innblásturinn er þátturinn Gossip Girl. Það er fatnaður fjórra aðalkvenkyns persónanna sem er notaður sem hugmyndir að línunni. „Það er spennandi áskorun að reyna að túlka mína fagurfræði í fjöldaframleiddum flíkum með sérstaka alþjóðlega heimild sem útgangspunkt," segir hönnuðurinn.

Sui er þekkt fyrir pönk, liti, listræn áhrif og glamúr – allt spinnað saman í einstakar flíkur sem ættu eflaust að heilla yngri markhóp Target, þá sérstaklega Gossip Girl aðdáendur. Ekki er oft sem að heil lína er innblásin af sjónvarpsþáttum, en fatnaður Gossip Girl þáttanna hefur þó þótt eftirsóttarverður, enda vel stíliseraður - fínn með skemmtilegu tvisti. Áhrif Gossip Girl gætir greinilega víða en spurningin er hvernig Önnu Sui tekst að blanda saman sínum líflega stíl saman við settlegri stíl Gossip Girl. Anna Sui fyrir Target fer í sölu 13.september á vefsíðu Target og í 250 verslanum víðsvegar um Bandaríkin.