ASOS til Íslands

70821238510879frettir3103.PNG

Í byrjun mars tilkynnti breska netverslunin ASOS að þeir sendi nú til Íslands. Áður var það ekki hægt og höfðu margir Íslendingar mikið fyrir því að versla við netverslunina. ASOS stendur fyrir As Seen on Screen og vísar þannig til þess að hægt er að versla svipuð föt og stjörnurnar. Verslunin var stofnuð árið 2000 og er eingöngu á netinu. Þeir eru með yfir nítján þúsund vörur til sölu á vefnum, en rúmlega 5 milljónir manna heimsækja vefsíðuna mánaðarlega.

Netverslunin selur gríðarlegt úrval af fatnaði, aukahlutum, skóm og snyrtivörum og er varningurinn í öllum verðflokkum. Þeir eru með sína eigin línu sem er er ódýr og inniheldur oft eftirhermur af dýrum hönnunarfötum sem stjörnurnar hafa sést í. Þeir selja einnig ýmis dýrari lúxusmerki líkt og Sonia by Sonia Rykiel, McQ by Alexander McQueen og Armand Basi One. Auk kvenfatnaðar eru þeir einnig með karlmanns- og barnafatnað.

Netverslunina má nálgast á www.asos.com