Audrey Tautou fyrir Chanel No.5
Hið fræga ilmvatn Chanel No.5 hefur verið í sölu í nánast 90 ár og er talið að glas af ilmvatninu seljist á 55 sekúndna fresti um allan heim. Í nokkur ár hefur sjónvarpsauglýsing Chanel No.5 með Nicole Kidman verið í sýningu. Auglýsingin er meira eins og stuttmynd, en hún er þriggja mínútna ástarsaga sem vakti mikla athygli fyrir draumkennt yfirbragð þegar hún kom fyrst út.
Næsta stjarnan til að leika í Chanel No.5 myndinni er franska leikkonan Audrey Tautou. Söguþráðurinn mun snúast um Audrey og leyndardómsmann á ferðalagi frá París til Istanbúl með Austurlensku hraðlestinni. Þau rekast alltaf á hvort annað en missa svo af hvort öðru þangað til í lokin þegar þau sameinast á mósaíklöguðu gólfi prýddu Chanel lógóinu.
Auglýsingin er ekki það eina sem Tautou er með í pípunum fyrir Chanel, þvú hún er einnig stjarnan í kvikmynd um Coco Chanel, Coco avant Chanel, þar sem hún leikur Coco sjálfa, en myndin verður frumsýnd í lok apríl víðsvega um Evrópu. Hins vegar verður auglýsingin, sem er leikstýrð af frakkanum Jean-Pierre Jeunet, afhjúpuð á heimasíðu Chanel 5.maí og í framhaldi af því fer styttri útgáfa af henni í almennar sýningar í sjónvarpi.
