Auglýsingaherferð Williamson fyrir H&M

54291240176562frettirhm.PNG
Til vinstri: Auglýsingarnar með fyrirsætunni Dariu Werbowy. Til hægri: Bakvið tjöldin í myndatökunni.

Tískuheimur.is tilkynnti fyrir nokkru að ný lína Matthew Williamson fyrir H&M keðjuna kemur í verslanir 23.apríl. Nú hafa myndir úr auglýsingaherferð línunnar birst á netinu. Þar sem línan er virkilega sumarleg með líflegum munstrum og skærum litum, kom það ekki á óvart að auglýsingamyndirnar hafi verið teknar í sólríku Mexíkó. Fyrirsæta auglýsinganna er pólska fyrirsætan Daria Werbowy.

Williamson segir ástæðuna fyrir því að taka myndirnar á ströndum Mexíkó vera sú að birtan þar sé svo falleg. Þótt fatnaðurinn hafi verið verulega heillandi á fyrstu kynningarmyndunum línunnar sem voru opinberaðar fyrr á árinu, þá stenst ekkert fallega strönd og bláan himinn í björtu sólarljósi í nýjum auglýsingamyndum. Auglýsingarnar munu án efa vera algeng sjón í tískutímaritum á næstu mánuðum.