Azzedine Alaia ekki með í sýningu Metropolitan
Linda Evangelista og Azzedine Alaia; Naomi Campbell og Alaia; Naomi mætti í eftirpartý galakvöldsins.
Fata- og skóhönnuðurinn Azzedine Alaia, sem var sérstaklega vinsæll á níunda áratugnum, skapaði þó nokkra dramatík í kringum sýningu Costume Institute sem nú stendur yfir í Metropolitan listasafninu í New York. Á galakvöldinu sem haldið var til heiðurs sýningunni áttu sjö ofurfyrirsætur að klæðast Alaia kjólum en degi fyrir kvöldið bað hann þær um að vinsamlegast klæðast ekki kjólunum. Ástæðan er að verk Alaia eru ekki sýnd á sýningunni í Metropolitan, þrátt fyrir að hafa verið afar vinsæll á tímum ofurfyrirsæta níunda áratugarins.
Meðal fyrirsætanna voru ekki ómerkilegri dömur en Naomi Campbell, Stephanie Seymour og Linda Evangelista. Allar þrjár ákváðu að mæta ekki á galakvöldið en talsmaður Naomi sagði við fjölmiðla að „þar sem Naomi hefur verið innblástur Azzedine Alaia í næstum 23 ár, vill hún ekki mæta nema hún geti verið fulltrúi hans." Sjálfur sagði hönnuðurinn það myndi vera „kjánalegt" að dressa fyrirsæturnar í sína hönnun þegar hann er ekki hluti af sýningunni.
Alaia segir ákvarðanir um hvaða hönnuðir taki þátt í sýningunni liggja í höndum Önnu Wintour, ritstjóra Vogue, og að hún hafi mikil völd yfir sýningunni. Marc Jacobs, heiðursgestgjafi galakvöldsins í ár, dáist hins vegar af Alaia. „Hann hefur haft mikil áhrif á hvernig konur eru mótaðar, hvernig konur líta út. Ég held að hann sé einn af stærstu áhrifavöldunum. Ég er vonsvikinn að hann sé ekki hluti af þessari sýningu," sagði Jacobs. Forstöðumaður Metropolitan safnsins segir þetta allt byggjast á slæmum samskiptum við hönnuðinn.
