Barbie í fatnaði eftir fræga hönnuði

76721239546856frettirbarbie.PNG
Karl Lagerfeld Ken og Barbie; Maison Martin Margiela Barbie, Gareth Pugh Ken; Jade Parfitt með Danielle Scutt Barbie, Henry Holland, Roksanda Ilincic með sína Barbie.

Fimmtugsafmælisveisla Barbie dúkkunnar heldur áfram, en nú hafa frægir hönnuðir fengið dúkkur íklæddar þeirra eigin hönnun. Sýning á dúkkunum í hönnunarflíkum hefur opnað í lúxusversluninni Galeries Lafayette í París. Samtals eru það fimmtíu hönnuðir sem eru þess heiðurs aðnjótandi að fá að klæða Barbie en þar á meðal eru Karl Lagerfeld, Christian Lacroix, Jean Paul Gaultier og Sonia Rykiel.

Hönnunar Barbie kemur ekki með ódýrum verðmiða en þær eru gerðar í takmörkuðu upplagi. Dúkkurnar eru líklegast ekki ætlaðar fyrir börn, enda ekki hvaða krakki sem er sem kynni að meta Lagerfeld Barbie. Dúkkurnar koma ekki einungis frá rótgrónum hönnuðum líkt og Lagerfeld því ýmsir nýrri og öðruvísi hönnuðir hafa fengið sína Barbie. Frumlegasta dúkkann af þeim öllum er án efa sú frá Maison Martin Margiela, en hún klæðist klæðnaði úr sumarlínu hans – húðlitaðri andlitsgrímu og samfesting, netasokkabuxum ásamt kápu úr ljósu hári.

Breski hönnuðurinn Gareth Pugh fékk ekki kvenkynsdúkku í sínum fötum, heldur eiginmann Barbie, Ken. Í samtali við Grazia lýsti hönnuðurinn hvernig hann vildi að Ken dúkkan sín ætti að vera, "ég vildi að minn Ken ætti að standa fyrir utan það sem er boðlegt. Ég vildi að hann væri nútímalegur. Þannig ég gaf honum svarta PVC kápu sem er minnkuð útgáfa úr karlmannslínunni minni." Aðrir breskir hönnuðir sem fengu sýna eigin Barbie eru Roksanda Ilincic og Danielle Scutt.

Samvinna Barbie fyrirtækisins Mattel við heimsfrægu hönnuðina hefur fengið mikla athygli innan tískuheimsins, enda ekki á hverjum degi sem Barbie klæðist svo dýrum fatnaði. Á miðvikudaginn var haldið Barbie partý í Dover Street Market í London fyrir þá bresku hönnuði sem tóku þátt í Barbie verkefninu. Sýningin í París hins vegar stendur til 25.apríl en mun ferðast eitthvað eftir það samkvæmt talsmanni.