Barnafatalína Stellu McCartney fyrir Gap
Stella ásamt sonum sínum; eftir sumarsýningu sína; sumarlína þessa árs.
Breski tískuhönnuðurinn Stella McCartney hefur gert samning við fatakeðjuna Gap um hönnun barnafatnaðar. Línan sem um ræðir mun vera bæði fyrir ungbörn sem og þau eldri. „Í mörg ár hefur mig langað til að gera línu fyrir börn," segir hönnuðurinn. „Þetta er eitthvað sem ég hef oft verið spurð um. Ég trúi því að þessi einstaka samvinna muni verða frábær leið fyrir viðskiptavinina að taka þátt í Stella McCartney merkinu. Ég trúi því að barnaföt ættu að vera á viðráðanlegri verði, sem er sérstaklega mikilvægt núna með tilliti til yfirstandandi aðstæður."
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Stella tekur höndum saman við fatakeðju, því hún hannaði línu fyrir H&M fyrir nokkrum árum eins og frægt er orðið. Stella McCartney hefur átt mikilli velgengi að fagna allt frá því hún útskrifaðist úr Central Saint Martins hönnunarskólanum um miðjan tíunda áratuginn. Eftir nám varð hún yfirhönnuður franska tískuhússins Chloé áður en hún stofnaði tískumerki í eigin nafni árið 2001 sem hefur verið gríðarvinsælt frá fyrsta degi.
Forstjóri Gap er spenntur yfir samvinnunni við Stellu sem hann segir í heimsklassa. Stella sjálf ætti að vita sitthvað um þarfir barna enda á hún þrjú, tvo syni og eina dóttur. Línan fyrir Gap mun einmitt bjóða upp á fatnað fyrir bæði kynin en gaman verður að sjá hvernig Stella mun þróa hönnun sína fyrir yngstu kynslóðina. Það er þó varla til hentugri tískuhönnuður í verkið enda einbeitir Stella sér mikið að náttúrulegum efnum og þægilegu yfirbragði sem er akkúrat yfirskrift barnafata. Línan mun fást í verslunum Gap í Bretlandi, Bandaríkjunum, Frakklandi og Japan undir lok ársins, nánar tiltekið í nóvember.
