Best klæddi karlmaðurinn

84671239181085frettirgq.PNG
Mark Ronson; Mark Ronson; Tom Ford; Daniel Craig.

Karlatímaritið GQ sem fjallar meðal annars um tísku og stíl karlmanna hefur birt lista yfir best klæddu mennina árið 2009. Mennirnir eru allir eins ólíkir og hægt getur og með mismunandi bakgrunn en þeir eiga það þó sameiginlegt að vera með óaðfinnanlega flottan stíl. Til að nefna dæmi um mismun þeirra þá er bæði að sjá einhleypa menn og fjölskyldufeður, samkynheigða og gagnkynheigða á listanum en mennirnir eru á öllum aldri, allt frá þrítugu til áttrætt.

Meðal þeirra sem eru topp tíu á listanum eru fótboltamennirnir David Beckham og Jamie Redknapp. Líkt og eiginkona sín hefur Beckham verið lofaður fyrir fágaðan og flottan stíl og klæðist vanalegast lúxusfatnaði samkvæmt nýjustu tísku. Sá sem vann best klæddi maðurinn síðasta ár var James Bond leikarinn Daniel Craig en nú var hann í fjórða sæti og sagði tímaritið hann bera fram óáberandi glæsileika.

Ameríski tískuhönnuðurinn Tom Ford er í þriðja sæti listans en hann er sagður hafa karlmannlegan stíl með fjörugu tvisti. Fyrrverandi eiginmaður Madonnu, Guy Ritchie, er í öðru sæti og fær hrós fyrir elegant stíl sem er þó alltaf með hæfilegu magni af óhefluðu yfirbragði. Fyrsta sætið vermir svo breski pródúsentinn Mark Ronson sem er með svolítið öðruvísi stíl með gömlu retro lúkki í formi lakkrísbinda, golftreyja og þröngra jakkafata.